Myndin 15.apríl Ég horfði á myndina Harry Potter og fanginn frá Azkaban eða Harry Potter and the Prisoner of Azkaban eins og örugglega flest hérna og ég vil segja nokkuð athugavert við myndina:

Í 4. bók þegar Harry var í völundarhúsinu þá kallaði hann fram verndara þegar hann mætti bogga-vitsugunni en verndarinn hafði engin áhrif á boggan.
Í 3.myndindinni hafði verndaraskýjið hans(ekki fullkominn verndari) áhrif á boggan og ýtti honum ofaní kistuna aftur!


Þýðingar: Þegar Ron og Hermione voru við draugahúsið og Draco og hinir voru ekki komnir… Þá sagði Hermione eitthvað um Draugahúsið og það var þýtt sem Skakklappi!WHAT?
Og þegar Draco var kominn sagði hann við Hermione mudblood og það var þýtt sem STELPUTRIPPI!
Alltaf þegar nafnið Scabbers er þýtt stendur Scabber.

Þegar Harry var að skoða Ræningjakortið og Ron vaknaði með köngulóarmartröð var skuggi af sprotanum sem Harry hélt á sem sýndi að ljósið kom ekki af sprotanum heldur af lampa eða einhverju slíku, mistök hjá “tæknimönnum”.

Þegar Lupin var kynntur af Dumbledore í byrjun skólaársins var of mikið fagnað, en það átti ekki að vera mikið fagnað og jafnmikið fagnað þegar Hagrid var sagður vera kennari í ummönnun galdraskepna. Ætti að vera meira fagnað.

Þegar Ron var að spá fyrir Harry:
Hann sagði eftirfarandi: You are going to suffer, (Hermione hreyfir höfuðið upp), but you are going to be happy about it, (Hermione hreyfir höfuðið til hliðar og niður, sem sagt í boga), þetta sýnir að Hermione vissi hvað Ron myndi segja því þetta atriði hefur verið æft fleirri en mörgum sinnum. (Erfitt að útskýra)


Þegar Ron var að útskýra fyrir Harry að kústurinn hefði eyðilaggst sagði hann “Womping Willow” en það var bara þýtt “tréð”.

Þegar Lupin breytist í varúlf og Peter Pettigrew breytir sér í mús detta fötin af honum… Næst þegar hann breytir sér í mann er hann þá alssber?
Reyndar var hann ekki í fötum sem Scabbers en í fötum þegar hann var Peter aftur.

Þegar Lupin var að fara að drepa Sirius og Hermione kallaði á Lupin breyttist Sirius í mann og skjögraði niður brekkuna að vatninu var Harry aðeins nokkrum skrefum á eftir honum og hann var þó sprettandi en samt var Sirius langt á undan honum að vatninu. Á hann að hafa tilflusts eða eitthvað?

Þegar Harry og Hermione voru farin aftur í tímann og voru að bjarga Grágoggi hafði Harry ekki augnasamband við hann þegar hann beygði sig en Hagrid sagði að það væri mjög mikilvægt.

Þegar Dumbledore, Fudge og böðullinn komu til að drea Grágogg sást að Dumbli sagði að fyrrverandi skólastjóri hefði gróðursett beitiling einhvers staðar áður en þeir komu inn en þegar Harry og Hermione voru farinn aftur í tímann sagði hann það þegar þeir voru búnir að vera inni.

Ég ætlaði að sjá hver textaði þessa mynd en ég var ekki að horfa þegar það kom og senda ruv tölvupóst og segja að passa sig að lesa bækur áður en þeir texta en ég var ekki að horfa þegar það kom svo ég slepptu því.

Þrátt fyrir þessi mistök var þetta mjög góð mynd, reyndar var frekar miklu sleppt úr eða breytt en þessi mynd var spennandi og fyndin.

Kv. ellipelli