Tonks fundin Leikkonan Natalia Tena hefur verið ráðin til að leika hina skemmtilegu Tonks í fimmtu kvikmyndinni um Harry Potter.

Natalia er ekki mikið þekkt en þið kannist kannski við hana úr ‘About a Boy’ þar sem hún lék pönkarann Ellie (hér er linkur á mynd af henni í hlutverki Ellie http://www.aveleyman.com/ActorsT/P00048240.HTML).
Aðrar kvikmyndir sem hún hefur leikið í eru The Fine Art of Love: Mine Ha-Ha (2005), Mrs. Henderson Presents (2005),The Grooming og About a Boy (2002).

Ekki er hægt að finna mikið af upplýsingum um hana eða myndum á netinu þrátt fyrir að ég leitaði á síðum á dönsku, ensku, þýsku, spænsku og frönsku. En upp úr því fann ég að hún hefur leikið í nokkrum leikritum eins og ‘Gone to Earth’ þar sem hún lék Hazel Woodus og er myndin sem fylgir hér með að ofan úr því leikriti.
Heimurinn er eins og stór bók. Þeir sem aldrei ferðast að heiman lesa aðeins fyrstu síðuna.