Núna er netið hjá mér búið að vera bilað nokkuð lengi svo það hefur verið frekar erfitt að senda inn framhaldið af síðasta prófinu mínu svo ég ákvað að senda inn nýtt próf sem ég vona að sem flestir hafi gaman af.
ATH: Flestar spurningarnar eru úr fjórðu og fimmtu bókinni.


1. Hvað fékk Ron í gjöf frá mömmu sinni þegar hann var tilnemdur umsjónarmaður?

2.Með hverjum fóru, Hermione, Ron og Harry á jólaballið á fjórða árinu.

3.Hvernig tókst Ritu Skeeter að afla sér frétta af Hogwartssvæðinu á þrígaldraleikunum þegar hún mátti ekki vera þar og hvaða fréttir skrifaði hún meðal annars?(Þarf aðeins að nefna tvær)

4.Hverjir hjálpuðu Harry að leysa; fyrstu þrautina, aðra þrautina, og þriðju þrautina í þrígaldraleikunum?

5.Hvaða greinar ráðlagði pr. McGonagall Harry að taka til þess að verða skyggn?

6.Hver var Sirius Black í rauninni samkvæmt grein í Skrumar og skrælt sem Harry las í lestinni á leiðinni til Hogwarts.

7.Hver drap Sirius í leyndarmálastofnuninni og hvernig reyndi Harry að hefna sín?

8.Hvaða fréttir hlustaði Harry á í gegnum stofugluggan þegar hann lá í blómabeðinu á Runnaflöt?

9.Hvaða drápara þekkti Harry í kirkjugarðinum þegar Voldemort endurholgaðist?

10. Hvernig eyddi Harry verðlaununum sínum eftir að hafa unnið þrígaldraleikana?

Mig langar að biðja þá sem ætla að taka þátt að senda svörin til mín með skilaboðum, og hafa svörin í réttri röð við spurningarnar, hafa titilinn Harry Potter svör og senda inn svörin áður en þessi mánuður er búinn.
Þeir sem senda svörin of seint fá ekki að taka þátt.
just sayin'