Hellusteinar. Ávalir hellusteinar. -
- tvö - þrjú - fjögur -
Þeir. Þeim að kenna. Allt. Farin. Þau eru farin! -
- þrjú - fjögur -
Trúði mér ekki. Fór. Trúði mér ekki. Hélt. Ótrúr. Hah! -

Þeir. Þeir tóku þær. Af mér. Mér -
- eitt - tvö - þrjú - fjögur -
Fjögur skref. - tvö - þrjú - fjögur -
Tóku þær! - þrjú - fjögur -
Hélt að ég héldi framhjá. Hverjum mánuði - fjögur -

Gat ekki. Gat ekki sagt henni. Gat ekki sagt henni. Ekki sagt henni að. Hvað gerðist -
- tvö - þrjú - fjögur -
Þeir! - tvö - Eyðilögðu. Eyðilögðu allt. Allt. Hefnd.
- eitt - tvö - þrjú - fjögur -
Fjögur skref. - tvö - þrjú - fjögur -
Hah! - tvö - Aldrei aftur.
Aldrei. Aldrei aftur þangað. Nei!
Skrímsli. Skepna. Þeir! Þeim að kenna.
- þrjú - fjögur -

Ekkert. Tóku allt.
- þrjú - Nóg. Tíu kíló. Naglar. Líka naglar. Kíló. Hlýtur að duga - tvö - þrjú -
Sjálfir. Sjálfum sér um kennt. Hefnd.
Emily. Tók Emily. Emmu. - tvö - Emma litla.
Aldrei. Aldrei aftur. Aldrei aftur Emmu litlu. -
- eitt - tvö - Nei! Ekki núna. Muna. Hefnd.

Þarna! Ráðuneytið. Þeim að kenna. Þeir.
Ský. Ský fyrir sólu. Ský. - þrjú - Grátt ský -
- tvö - þrjú - fjögur -
Fólk. Þau. Þeim að kenna. Öll. Hefnd.
Emma. Hrædd. - þrjú - Ringluð. Burt. Tók burt. - eitt - tvö - Aldrei. Aldrei aftur.

Takkinn. Vasi.
- eitt - tvö - þrjú - fjögur -
Skrímsli! Ekki. Ekki mér að kenna. Aldrei aftur þangað. Aldrei. Kjallari.
- þrjú - fjögur - Skepna. Nei! Þau eru skepnurnar. Ég. Þeim að kenna.

Blóð.
- tvö - þrjú -

Dyrnar. Inn um dyrnar. - eitt - tvö - Barn! Stúlka. Jafn gömul og-Nei! Ekki núna. Muna. Hefnd. Blóð.

- eitt - Hún fer. Gott. Saklaus.
- eitt - tvö - þrjú - fjögur -
Saklaus. Ég saklaus. Refsað. - þrjú - Réttlæti. Hefnd.

Takkinn. - fjögur -

HEFND!

Svart.