1. Þegar einhver er að stríða þér er helsta vörn þín að segja: “Þegiðu annars kasta ég drápsböluninni á þig.”
2. Ef að þeir hlægja að þessu hleypurðu grenjandi burtu og öskrar :“Ég skal sækja alla vini mína í Hogwarts og láta þá leggja fótlásarbölvun á ykkur og allt það.”
3. Þú átt hvert einasta lego-drasl sem að hefur verið búið til um Harry Potter.
4. Þú brjálast ef þú nærð ekki að leika þér að því eina klukkustund á hverjum degi.
5. Þú dúllar þér við á hverju einasta kvöldi að læra utan að allar töfraþulurnar í Harry Potter bókunum.
6. Þú eyðir mörgum mánuðum í að nurla þér fyrir Harry Potter plastsprotanum.
7. Þú skerð ör sem er í laginu eins og þruma á ennið á þér og ætlar að láta tattúvera ör þarna.
8. Þú hleypur hvern einasta dag heim úr skólanum, kíkir í póstlúguna hjá þér og gerir dauðaleit að bréfi merktu þér með merki Hogwartsskóla.
9. Þú talar við ósýnilegu vini þína, Harry Potter, Ron Weasley, Hermione Granger og Dumblerdore.
10. Upphafssíðan þín á netinu er einhver áhugaspunasíða og þú eyðir mörgum klukkustundum í að lesa þá, prenta þá út og geyma til að geta skemmt þér við að lesa seinna.
11. Þú heytir alltaf á msn Harry Potter eða einhvað svoleiðis.
12. Þú grenjar í kennaranum þínum alveg þangað til að hann leyfir þér að hafa fjögur borð við hliðina á þér fyrir alla ímynduðu vini þína.
13. Aðalklæðnaður þinn er skikkja og galdrahattur.
14. Þú leitar í öllum gæludýrabúðum sem að þú finnur og ef það gengur ekki pantar þú þér uglu frá útlöndum.
15. Þú þjálfar ugluna þína til að flytja póst, skýrir hana Hedwig og skrifar bréf til Dumbledores og spyrð afhverju í fjan***** þér hafi ekki verið boðin vist í Hogwartsskóla.
16. Þú grenjar í mömmu þinni og pabba á hverjum degi og biður þau um að flytja til Bretlands eða að minnsta kosti að skrá þig í heimavistarskóla.
17. Þú nöldrar í skólastjóranum þínum, sendir bréf til Menntamálaráðuneytisins og Menntamálaráðherra og biður þau að bæta við námsgreinum eins og ummyndun, töfradrykkjum, ummönun galdraskepna og svo framvegis.
18. Þú býrð til bækur um hvernig á að búa til töfradrykki, annast galdraskepnur, ummyndun og svo framvegis.
19. Þú horfir á milljón morðmyndir í þeirri von að þannig geti þú séð Váka.
20. Þú ferð inn í skóg á hverjum degi og leitar að galdraskepnu.
21. Þú hefur spurt á hverri einustu krá á landinu hvort þeir selji ekki hunangsöl eða smjörbjór.
22. Þú gengur með stór svört kringlótt gleraugu þótt þú sjáir ekkert illa, brítur þau í miðjunni og límir saman.
23. Þú litar hárið á þér svart og safnar í lubba til að vera líkari Harry Potter.
24. Þú borðar eins lítið og þú getur til að gera verið lítill og grannur líkt og Harry Potter.
25. Þú vilt ekki láta kaupa á þig föt bara fá notuð föt frá einhverjum ættingja.
26. Þú óskar þess á hverju kvöldi að Voldemort komi myrði foreldra þína og að þú komist að því að þú sért galdramaður.
27. Þú kannt allar Harry Potter bækurnar utan að og aftur á bak.
28. Þú átt Harry Potter eitt og tvö myndirnar og finnst svooooo gaman að tala með þeim.
29. Þú biður mömmu þína og pabba að senda þig til einhvers vonds ættingja.
30. Á hverri hrekkjavöku segirðu pabba þínum að standa við dyrnar og bíður hjá mömmu þinn og vonast til þess að Voldemort komi.