Hvarf Freds.
1.Kafli: Óvænt heimsókn.

Harry sat í rúminu sínu á Runnaflöt og
hugsaði um vini sína hvar skyldu þau vera?
Vonandi hafði Voldemort ekki náð þeim. Hann
ákvað að fara að læra og byrjaði að skrifa ritgerð í ummyndun
svo var allt í einu bankað á gluggann Harry hrökk við. Þar voru
Ron, George og Ginny. Harry varð mjög glaður að sjá þau!!!
”Hæ’’ sagði Ron.
“Hæ gaman að sjá ykkur. En hvar er Fred?’’ spurði Harry
“Þú veist hver tók hann.” sagði Ginny.
“Ha eigum við ekki að fara að leita að honum?’’ spurði Harry
“Jú við komum til að spyrja þig hvort þú gætir
komið með okkur?’’ sagði George.
“Ég skal koma, en… hvernig á ég að komast?’’ sagði Harry
”Nú auðvitað á kústinum áttu ekki Þrumufleyg?’’ sagði Ron
“Jú en allt dótið mitt?’’sagði Harry
“Ææ þú verður bara að geyma það hér þú
getur ekki tekið koffortið með en áttu engan
poka?’’ sagði George
“Jú ég tek sprotann og huliðsskikkjuna og
eitthvað smá meira.” sagði Harry
“Ok flýttu þér við vitum ekki um Þú veist hvern.’’
“Allt í lagi“ sagði Harry um leið og þeir flugu upp í himininn.

“ Hvenær tók Voldemort Fred?’’spurði Harry
“ Í gærkveldi við flúðum öll en hann náði Fred
og við reyndum að ná honum aftur. Við flugum
hingað. Bill og Pabbi eru á eftir þeim!’’ sagði
Ginny. “Hvar halðið þið að þeir séu?” spurði George. “Kannski
þarna’’ sagði Ginny og benti í átt að stórum skógi .

Þau flugu yfir skóginn en sáu ekkert í fyrstu en
ákváðu að skoða nánar.

Ginny og Fred fóru í austur og Harry og Ron í vestur . Eftir
u.þ.b. klukkustundargöngu heyrðu þeir ógnvænlega rödd sem
sagði “Ég drep þig ef þú segir mér ekki hvar Harry Potter er.’’
Svo heyrðu þeir rödd Freds “Ég segi ekkert hann er vinur
minn.’’
Harry og Ron gengu á hljóðið og sáu þá Fred bundinn og
Voldemort stóð ógnvægilega yfir honum ,Harry stökk til og
sagði skýrum en örlítið óstyrkum rómi “Hér er Harry Potter.’’

Voldemort snéri sér við, hann var í svartri skikkju
með hettu, með sprotann á lofti.Hann horfði á
Harry og sagði “Þú færð Fred ef ég fæ ÞIG.’’
Harry hugsaði sig um örlitla stund. “Samþykkt” sagði hann og
gekk til Voldemorts . Hann sá ljótt andlit með fölu brosi sem
glotti til hans . Veran leysti Fred, gekk svo að Harry og sagði
“Gott og vel” Ron og Fred tóku upp sprotana og hugsuðu.
Hvað áttu þeir eiginlega að gera .
Allt í einu hljómaði rödd Voldemorts “crucio” Harry fann
gríðalegan sársauka kreppast um allan líkamann í smá stund,
svo hætti það. Voldemort sagði ”var þetta vont?” Og hló Harry
gretti sig hann fann enn svolítið til í örinu .
“Hvað ætlaru að gera við mig?” spurði Harry .
“Hmmm hver veit kannski ….. Drepa þig. Nei
ekki strax kannski seinna þegar þú ert búinn að
fletta ofan af leyndarmálunum þínum. ” sagði
veran “ALDEI!” sagði Harry
“Nú?” sagði veran með smeðjulegri rödd.. “Þá er best að
drepa þig bara núna ekki satt?,,. Sagði veran.
“Avada Kedavra” heyrðist hljóma um skógarrjóðrið . Harry bjó
sig undir það versta en ekkert gerðist. Hann opnaði augun og
sá veruna liggjandi á jörðinni og yfir henni stóðu Ron og
Fred.
“Við rotuðum hann einhvern veginn” sagði Fred
“Við gátum ekki horft uppá hann drepa
þig” Sagði Ron.
“Takk,” sagði Harry ”En hvað eigum við að gera” “Öhh… binda
hann
og fara að finna George og Ginny,,.Sagði Ron. “Góð
hugmynd” sagði Fred ”förum.”
“En eigum við að gá hver þetta er? …Veran." sagði Harry.

Þeir tóku Hettuna af. Harry tók andköf…. Þetta var ekki
Voldemort eins og þau héldu…………….


….heldur Servius Snape.