Ég skrifaði fyrsta hluta (ekki kafla) og hann hét ekki neitt. Ég setti hann því bara inn núna með öðrum hluta. Ég set svona *** þar sem annar hluti byrjar. Endilega komið með athugasemdir. Þessi hluti er ekki alveg eins flottur og sá fyrsti eða það finnst mér. Hvað finnst ykkur?

_____________________________________________ _______________________________________________________ _________



Hermione lá glaðvakandi í litlu íbúðinni í London. Mamma hennar og pabbi voru sofandi í herberginu við hliðina á. Hún gat ekki skilið hvers vegna hún gat ekki sofnað. Það var eitthvað sem angraði hana, eitthvað skrítið. Hún hugsaði um Ron og Harry. Hvað skildu þeir vera að gera. Skyldu þeir vera sofandi, eða lægju þeir líka andvaka. Hermione var svo niðursokkin í hugsanir sínar að hún heyrði ekki þegar nafnið hennar var kallað.
,,Hermione!“
,,Hún svarar ekki, skyldi hún vera sofnuð” hvíslaði rauðhærður drengur að vini sínum.
,,Veit ekki“ svaraði hinn.
,,En Harry, hvað ef við náum ekki í hana. Hvað helduru að gerist.”
,,Ég veit ekki en mér heyrðist á pabba þínum þegar hann var að tala við mömmu þína að Hermione væri í lífshættu.“
,,Þá verðum við að ná henni út úr húsinu og burt áður en eitthvað kemur fyrir hana” sagði sá rauðhæri æstur.
,,Róaðu þig nú niður Ron, áður en þú vekur allt hverfið. Prófaðu bara að kalla aftur.“

Hermione fannst hún heyra eitthvern vera að kalla á sig, hún leit fram á gang en þar var enginn. Þá gekk hún að glugganum og leit út.
Hún varð furðulostin. Hvað voru þeir að gera hér?
,,Hermione!” kallaði Harry
,,Hvað eruð þið að gera hér“ kallaði Hermione á móti.
,,Klæddu þig og komdu hingað niður, við útskýrum allt þá.”
,,Af hverju í ósköpunum?“ spurði hún furðulostin.
,,Komdu þér bara út” sagði Ron.
,,Allt í lagi, en þegar ég kem vill ég fá almennileg svör“ sagði Hermione og hvarf úr glugganum.

Fimm mínútum síðar var hún komin út til þeirra.
,,Jæja, hvað var svona mikilvægt?” spurði hún.
,,Hérna, sko…“ stamaði Harry.
,,Já, hvað” spurði hún.
,,Hann á við að við höldum að þú sért í lífshættu“ sagði Ron.
Harry leit á Ron ,,þú hefðir kannski getað sagt þetta aðeins varlegar” sagði hann reiðilega.
,,Ha!“ æpti Hermione ,,hvað meinið þið? Er ég í lífshættu? Hvað á ég að gera?”
,,Þú skalt byrja á því að róa þig niður“ sagði Harry ,,og leyfðu okkur að útskýra.”
,,En við skulum koma okkur héðan á meðan við útskýrum“ sagði Ron.
,,Þetta hófst allt með því” byrjaði Harry ,,að ég fékk bréf frá Ron.“

°°°°°°°°°°

Harry lá í rúminu sínu og góndi upp í loftið. Hedwig kom fljúgandi inn um gluggann með bréf um hálsinn. Hún lét það detta í rúmið og settist svo á stólbak. Harry leit á bréfið og sá að það var frá Ron. Hann opnaði það og las það.


Harry!
Ég var að koma frá Grikklandi og það var æði. Pabbi var á einhverji ráðstefnu.
Þegar við komum heim þá sagði pabbi að ég ætti að senda þér bréf og spyrja þig hvort þú vildir koma og vera það sem eftir væri að sumrinu hjá okkur.
Jæja nú er ég að því og viltu vera fljótur að svara.
kveðja Ron


Harry varð rosalega glaður og skrifaði strax annað bréf.


Ron!
Ég vill svo sannarlega koma, hvenær á ég að koma, hvenær ætliði að sækja mig.
svaraðu fljótt.

Svo lét hann Hedwig hafa bréfið og hvíslaði að henni að vera fljót.
Hún flaug út um gluggann en hann lagðist á rúmið sitt og hélt áfram að góna upp í loftið. Á endanum sofnaði hann.
Harry dreymdi stórfurðulegan draum. Hann var staddur í kirkjugarði fyrir framan fallegan legstein. Á legsteininn var eitthvað letrað, eitthvað sem Harry gat ekki skilið. Hann færði sig nær og reyndi að sjá hvað stóð þarna en þá datt hann. Þegar hann leit upp var hann ekki lengur í kirkjugarðinum heldur upp á hól og það var allt dimmt umhverfis hann. Einhver kallaði nafnið hans. Hann kannaðist við röddina en gat ekki munað hver áttu hana. Röddin kallaði á hjálp. Harry reyndi að finna þann sem þurfti á hjálp að halda en hvað sem hann reyndi að komast áfram í myrkrinu þá tók bara við honum enn meira myrkur. Harry ráfaði um en að lokum datt hann um eitthvað. Það var manneskja. Lífvana manneskja. Harry sneri henni við og ætlaði að taka hárið frá andlitinu þegar eitthvað greip í öxlina á honum. Harry öskraði og vakti með því sjálfan sig. Harry andaði léttar. Þetta var bara draumur. Hann strauk hendinni yfir ennið á sér. Honum brá. Var þetta eitthvað í hendinni á honum eða var það… Harry hljóp niður stigann og klessti næstum á Dudley sem var á leiðinni upp. Harry brunaði inn á baðherbergi og leit í spegil. Hann strauk hárið frá enninu. Hann starði lengi í spegilinn þar til hann áttaði sig. Þá hljóp hann upp í herbergið sitt. Hann sá að Hedwig var komin. Harry tók bréfsefni og skrifaði þrjú orð á það



,,Örið er horfið!”


Hann lét Hedwig fá bréfið og sagði henni að fljúga beinustu leið til Ron's.
Hedwig flaug af stað í þriðja skipti þennan dag. Harry sat eftir orðlaus.
,,Hvernig gat þetta hafa gerst?“
Hendurnar á Harry skulfu, fyrst draumurinn og svo þetta. Hvað var að gerast?
Harry sat stjarfur í nokkra stund eða þar til Petunia öskraði á hann að það væri matur. Harry flýtti sér niður til þess að vera á undan Dudley að borðinu. Annars gæti hann alveg eins verið ennþá inn í herberginu. Það var girnilegt lambalæri í matinn, en það sem var á disknum hans Harry gat ekki beinlínis kallast kvöldmatur. Afgangurinn úr hádegismatnum, upphitaður fiskur. Harry missti matarlistina en hann vissi að fyrst hann var komin þá þyrfti hann að borða. Sem betur fer var Pítí, hundur Dudley, undir borði og Harry lét fiskinn sinn detta niður til hennar. Svo stóð hann upp og þakkaði fyrir matinn, og fór upp til sín.
Þá loks tók hann eftir bréfinu frá Ron. Hann opnaði það og las.

Harry!
Við komum að sækja þig á morgun um hádegi, vertu tilbúin.
Hlakka til að sjá þig.
Ron

Harry lagði frá sér bréfið. ,,Skildi Ron hafa fengið bréfið frá mér?” hugsaði hann með sér. Harry andvarpaði. Hann var ekki alveg búin að jafna sig eftir “sjokkið”. Harry var glorhungraður. Kökubirgðirnar hans voru uppurnar og ekki þýddi að fara að biðja um mat hjá Petuniu. Hann ákvað því að fara að pakka dótinu sínu niður. Hann lauk því á tíu mínútum, það var ekki eins og hann ætti mikið af fötum. Dursleyhjónin voru ekki beinlínis að ausa í hann peningum. Harry fór að hugsa um afmælisgjafirnar sem hann hafði fengið frá þeim, nokkra fimmtíukalla, herðatré, gamla sokka og núna seinast notaðan blýant og frostpinnaspýtu. Þá fór hann að hugsa um afmælið sitt. Hann átti afmæli eftir viku. Rosalega var eitthvað stutt í það. Harry fór að geispa og að lokum steinsofnaði hann.

Daginn eftir vaknaði Harry klukkan hálf átta. Hann sá að Hedwig var sofandi í búrinu sínu. Það fyrsta sem honum datt í hug var að hann hafði gleymt að láta Dursleyfjölskilduna vita að hann væri að fara til Ron. Harry blótaði sjálfum sér fyrir það. Vernoni fannst ekki gaman að láta vekja sig snemma á laugardagsmorgnum. Harry klæddi sig því og fór niður í eldhús. ,,Kosturinn við að vakna snemma“ hugsaði Harry með sér ,,er að þá fær maður góðann morgunverð.” Harry opnaði ísskápinn og náði sér í egg, mjólk og smjör. Svo setti hann brauð í ristina og sauð sér egg. Hann fann hvað hann var svangur. Þegar Harry var búin að borða fór hann upp í herbergið sitt. Það fyrsta sem hann rak augun í var bréf. Það var frá Ron. Harry opnaði það og las.


Harry!
Ertu eitthvað brjálaður! Örið hverfur ekki bara sísvona. Farðu að sofa og athugaðu þetta í fyrramálið. Þér hlýtur að hafa missýnst. Þetta er bara ekki mögulegt.
sjáumst
Ron


Harry las bréfið þrisvar yfir en fór svo niður á bað og athugaði ennið á sér. Nei, örið var horfið! Hann fór út í garð og lagðist í grasið. það var steikjandi hiti úti, jafnvel þótt klukkan væri ekki nema hálf níu. Harry var orðið svo heitt að hann fór inn. Um leið og hann lokaði hurðinni fannst honum hann heyra í bíl keyra inn í innkeyrsluna. ,,Nei, það getur ekki verið, klukkan er svo lítið“ hugsaði Harry. Hann hljóp upp stigann og inn í herbergið sitt. Er hann lokaði hurðinni hringdi dyrabjallan. Harry heyrði umgang niðri og datt í hug að Vernon hefði vaknað. Það boðaði ekki gott. Ef vernon var vakin snemma á frídögum þá var eins gott að halda sig fjarri honum. Harry heyrði Vernon opna hurðina.
,,Halló, ég heiti Arthur Weasley, við höfum víst hittst áður.”
Á eftir fylgdi þögn. Svo kom öskrið.
,,Hvað í óskupunum eru þið að gera hér! Getur maður aldrei stundarfriður fyrir þessu galdrahyski.“öskraði Vernon.
Harry hljóp niður stigann. ,,Hæhæ, ég er tilbúin, eigum við ekki bara að leggja í hann. Koffortið mitt er uppi.” Fred og George fóru upp og náðu í koffortið. Vernon stóð orðlaus með Petuniu og Dudley sem höfðu vaknað við öskrin. ,,Við sjáumst þá næsta sumar“ sagði Harry við Dursleyfjöskylduna. ,,Bless, bless” bætti hann við og skellti hurðinni á nefið á þeim.

Harry steig upp í bíl Weasley fjölskyldunnar og Arthur ók af stað. Enginn sagði neitt. Á endanum rauf Harry þögnina.
,,Afhverju komuð þið svona snemma?“
*******
Enginn svaraði. Harry endurtók spurninguna, ekkert svar. Hann var orðin óþolinmóður.
,,Á ekkert að svara manni” sagði hann byrstur.
Ron leit undan, Arthúr glápti á stýrið, Fred starði á skóna sína og George fékk skyndilegann áhuga á ljósastaurunum við veginn.
,,jæja“ sagði Harry við sjálfann sig ,,ég á greinilega ekki að fá að vita það. Hann hristi hausinn.

Þeir óku þegjandi til hreysisins. Þar tók Mollý á móti þeim.
,,Er allt í lagi með þig Harry” spurði hún áhyggjufull.
,,Jájá, það er í fínu lagi með mig“ svaraði Harryundrandi á því hversu áhyggjufull frú Weasley var.
Arthúr tók koffortið úr bílnum og bar það inn. Svo bað hann Harry að koma með sér inn í stofu. Harry fór á eftir honum og Ron fylgdi á eftir þeim.
Þegar þeir voru komnir inn í stofuna lokaði Arthúr hurðinni á eftir þeim og settist í sófann. Hann ræksti sig og byrjaði að tala.
,,uhm.. já..ehe, sko Harry” byrjaði hann. ,,Ég var á ráðstefnu í Grikklandi og sko, ég sko.“
Harry hélt að hann ætlaði aldrei að koma þessu út úr sér. Hann litaðist um á meðan Arthúr hélt áfram að stama. Ron sat þögull í stólnum sínum.
,,Hann á við að þú sért kannski í lífshættu” sagði Ron skyndilega.


,,Bíddu,bíddu“ greip Hermione fram í. ,,Var það ekki ég sem átti að vera í lífshættu.”
,,jú, en við komum að því seinna“ sagði Harry og hélt áfram með söguna.
,,Þarna sátu við í stofunni og…”
Hermione greip aftur fram í.
,,En ég skil ekki alveg, hvers vegna…“
,,Bíddu með spurningarnar þar til við erum búnir” sagði Ron pirraður ,,Harry haltu áfram.“
,,Já, þarna sátum við í stofunni og…”



Harry gapti. Hann var alveg orðlaus.
,,HA?!“ öskraði hann svo.
,,Já, en það er óþarfi að vera með þessi læti, það er alveg óvíst. Þeir eru að rannsaka málið” sagði Arthúr og leit illilega á Ron. Ron leit niður.
Það var skelfingar svipur á andliti Harry. ,,Fyrst hvarf örið og svo þetta.“
Arthúr byrjaði aftur að tala. ,,já, sko Harry. Ég var á þessari ráðstefnu í Grikklandi og við ræddum um háalvarleg mál meðal annars um að galdramenn væru byrjaðir að hverfa, galdramenn náskyldir muggum. Svo að mér datt í hug að fyrst að frænka þín væri muggi þá gætir þú horfið. Ég ræddi þetta við þá sem á ráðstefnunni voru og þeir ráðlögðu mér að fá þig heim til mín til þess að EF þú hyrfir þá gæti ég samstundis gert þeim viðvart. Ástæðan fyrir því að við komum svona snemma að sækja þig var sú að enn einn galdramaður er horfinn.” Arthúr dró djúpt andann.
Harry starði á hann. Þeir þögðu allir. Þar til Ron leit upp.
,,Jæja Harry, þá veistu það“ sagði hann.
,,Bíddu nú við, ég er semsagt í lífshættu og það eru miklar líkur á að ég geti horfið, ókey, nú er ég byrja að átta mig á þessu” sagði Harry og hristi hausinn.
Skyndilega opnaðist hurðin og Fred, George og Ginny duttu inn. Arthúr reis snögglega upp úr stólnum sínum, öskureiður á svipinn.
,,Voruð þið að hlera!?“ öskraði Arthúr á þau.
,,Við, ha nei…”sagði Fred
,,Hvernig útskýriði þá það að þið hafið dottið inn um hurðina?“ sagði Arthúr orðin eldrauður í framan.
,,sko, ég var að labba” sagði George.
,,já og þá kom ég“ sagði Fred.
,,og við byrjuðum að tala saman..og þá kom Ginny labbandi…og ég fór að tala við þá…já,sko við vorum að tala um…”
Fred leit á George og Ginny.
,,Kengúrur“ sagði Ginny.
,,Já, kengúrur og þær eru sko mjög flottar.. já, mjög flottar, og…og…”
Fred, George og Ginny töluðu hvert upp í annað og reyndu að útskýra afhverju þau duttu inn um dyrnar.
,,Já og þarna vorum við að tala um…Kengúrur…já og þá sáum við…kanínu…og þá sagði Fred við mig að kanínur væru minni en kengúrur…og þá fórum við að hoppa…en ég missti jafnvægið…og hann datt á mig þannig…að hún rann á mig og við duttum öll beint á hurðina…hún var ekki læst…og hún opnaðist bara…alveg óvart.“
Þau settu upp sakleysislegan svip og brostu til Arthúrs.
,,Jæja, þið segið nokkuð” sagði Arthúr og horfði illilega á þau.
Harry reyndi að bæla niður hláturinn og það batnaði ekki við það að horfa á Ron sem hristist og skalf í stólnum sínum. Þeir litu hvor á annan og þar með sprungu þeir. Harry og Ron veltust um af hlátri og Arthúr leit öskuillur á þá.
,,Hættið þessum látum“ æpti hann. En þeir voru í allt of miklu hláturskasti til að þeir gætu stoppað. Fre, Ginny og George fóru líka að hlæja og að lokum veltust þau öll um af hlátri. Arthúr rauk út og kallaði eins og óður væri á konu sína.
,,Börnin eru að ganga af göflunum. Ég ræð ekkert við þau!”
Þegar Mollý kom loks hlaupandi niður stigann. Krakkarnir voru búin að jafna sig en þegar Mollý kom æðandi inn í stofuna með Arthúr á hælunum fengu þau annað hláturskast. Þau hlógu og hlógu og hlógu þar til Mollý æpti: ÞÖGN!
Þá steinþögðu þau.
,,Fred, George, Ginny, inn í herbergin ykkar. Ron þú kemur með mér. Harry vilt þú ekki bara setjast niður og ég skal koma með eitthvað gott að borða handa þér.“ Harry opnaði munninn og ætlaði að segja eitthvað en Mollý bandaði frá sér með hendinni og benti honum á að þegja. Harry hristi hausinn. Fred, George og Ginny fóru skömmustuleg inn í herbergin sín og Ron fór á eftir mömmu sinni. Arthúr labbaði á eftir þeim.
Harry var einn eftir inn í stofunni. Hann settist niður og fór að hugsa um það sem Arthúr hafði sagt. Var hann raunverulega í lífshættu. En hvernig þá. Hvað varð eiginlega um þá galdramenn sem hurfu. Skyndilega fékk hann hugmynd. Gat þetta eitthvað verið tengt hvarfinu á örinu. Harry hafði ekki hugsað út í það fyrr en nú. ,,En skyldi Ron hafa sagt pabba sínum frá hvarfinu á örinu?” Harry gekk út úr stofunni og fór að leita að Ron. Harry gekk inn í eldhús og þar sá hann Ron vera að skera grænmeti á fullu. Mollý var ekki þarna svo Harry gekk til Rons og potaði í hann.
,,Heyrðu Ron, sagðirðu pabba þínum frá því að örið væri horfið?“
,,Ha, nei er það horfið í ALVÖRU!”
,,já“ svaraði Harry.
Ron horfði á hann með skelfingarsvip.
,,Má ég sjá?” sagði hann.
Harry lyfti hárinu frá enninu.
Ron varð grænn í framan. Svo leið yfir hann.
Hann skall með dynki á eldhúsgólfið. Harry æpti. Mollý kom æðandi inn í eldhúsið.
,,Hvað er að?“ spurði hún. Hún leit niður og sá Ron. Harry hélt að það myndi líða yfir hana líka.
,,Það leið bara yfir hann, hann er ekki dáinn” flýtti hann sér að segja.
Mollý leit á hann. Svo æpti hún. Harry heyrði hurðaskell og svo komu Fred, George, Ginny og Arthúr æðandi inn í eldhúsið.
,,Það leið yfir Ron, annars er ekkert að okkur“ sagði Harry.
Mollý settist niður og Arthúr náði í vatnsglas handa henni. Svo skvetti Fred vatni framan í Ron. Ron rankaði við sér.
,,Afhverju leið yfir þig maður?” spurði George.
,,Harry…segðu þeim það“ stundi Ron upp.
,,Sko,” sagði Harry. ,,Örið er horfið.“
Þau störðu öll á hann. Harry roðnaði. Mollý leit með hræðslusvip á Arthúr.
,,Er það satt?” spurði Arthúr.
,,Já“ sagði Harry og lyfti hárinu frá enninu. ,,Dagsatt.”
Þetta var of mikið fyrir Mollý. Það leið yfir hana. Arthúr rétt náði að grípa í hana. Fred sem stóð næst vaskinum greip glas af vatni og skvetti framan í mömmu sína. Hún rankaði við sér. Hún var náföl. Arthúr bað Ginny að fara með hana upp í herbergi. Ginny hlýddi og þær gengu upp stigann. Ron sem enn sat á gólfinu reis upp og ýtti við George sem starði enn á Harry.
,,Hvernig gerðist þetta?“ spurði Arthúr áhyggjufullur.
Harry sagði þeim frá draumnum og hvað hafði gerst eftir að hann vaknaði.
,,Annars veit ég eiginlega ekki hvað gerðist” sagði Harry.
Arthúr leit á hann og sagði að hann þyrfti samstundis að tilkynna þetta.
,,Hafið mig afsakaðan. Og endilega útbúið einhvern mat“ sagði Arthúr og gekk út úr eldhúsinu.
,,Jæja” sagði Harry. ,,Er ekki best að gera einhvern mat fyrst hann bað okkur um það.“
,,jú, það er víst best” sagði Ron. ,,En þetta verður ekki neinn herramannsmatur. Að láta okkur sjá um eldamennskuna“ tautaði hann og hristi hausinn. Fred yppti öxlum og setti pott á eldavélina en George lagði á borðið.
Eftir stutta stund kom Ginny niður í eldhús og þeir settu hana strax í að útbua sjálfann matinn. Þeir sögðust sjá um meðlætið. Fred, George og Harry fóru að hjálpa Ron með grænmetið.
Kvöldmaturinn um kvöldið var ofurlítið pasta og heilu haugarnir af niðurskornu grænmeti. Allir átu þegjandi. Eftir matinn elti Harry Ron upp í herbergið sitt. Þeir settust á rúmið hans Ron og Harry sagði.
,,Í kvöldmatnum var ég að velta dálitlu fyrir mér. Ef ég er í lífshættu, hvað þá með Hermione?”
Ron horfði á hann með skelfingarsvip.