Þessi saga öll var eigilega tileinkuð bestu vinkonu minni Svandísi
í mosó hún er alltaf svo dugleg að hjálpa mér

Jæja, hérna er þetta komið, allt hreint og fínt :)

3 kafli

…..alveg eins dýr og Harry átti, bara þetta var ljóst en dýr Harrys var svart.
“Hvar fékkstu þetta?” sagði Harry .
“Það skiptir þig ekki máli, ég get fengið flott gæludýr annað en hann Weasly, hann á bara lttla ljóta uglu, ha, ha, þú gætir aldrei fengið helming af því sem ég fæ á einum degi, þú ert svo fátækur.
”Drullaðu þér í burtu Malfoy og láttu okkur í friði og taktu ljótu svínin þín með þér“ sagði Hermione og leit á Crabbe og Coyle.
”Nei hann fer ekki fyrr en hann segir mér hvar hann fékk þetta dýr!“
Síðan dró Harry, Nymero upp úr vasanum sínum og sýndi. Draco fór að hlæja og sagði síðan með illkvikindislegri röddu ”hvar fékkst þú þitt, ef þú segir mér, þá segi ég þér hvar ég fékk mitt“.
”Ég fann það í holu. Ég festi fótinn á mér og síðan kom þessi hérna“ sagði Harry og klóraði Nymero undir hökunni.
”Aumingja Potter, festist í holu. Hann festist í öllu, til dæmis festist með ljótum og heimskum vinum“ sagði Draco og hló og labbaði út, en Harry hljóp á eftir honum og kallaði en ”hvar fékkst þú þitt dýr?“
”Annað en þú þá gaf faðir minn mitt“ sagði Draco og brosti þegar hann labbaði í burtu með Crabbe og Coyle á eftir sér.
”Ég virkilega þoli ekki þessa stráka“ sagði Ron og sast niður og klappaði Skakkalappa.
Ron og Skakkalappa komu rosa vel saman núna, reyndar hafði Ron passað hann meðan Hermione fór til spánar.
Ferðin í lestinni fór að styttast og bráðum myndu þau vera komin til Hogwarts, en allt í einu gerði Ron svoldið sem Harry hafði aldrei séð Ron gera. Hann fór á hnén og tók í höndina á Hermione og byrjaði að syngja um hversu hann elskaði hana mikið. Harry, Seamus og Neville sprungu öll úr hlátri, en Ginny horfðu bara á stóra bróður sinn með hneykslunar svip og hermione roðnaði eins og hún væri með rauða málningu framan í sér.
Síðan sagði Ron ”viltu byrja með mér?“
Hermione gat ekki sagt neitt, en síðan leit hún á Harry og fékk smá tár í augun og sagði ”bíddu með þessa spurningu aðeins, ég er ekki tilbúin“.
Ron brosti bara og sast niður og sagði síðan ”ég skal spyrja þig eftir 1 mánuð“ Hermione brosti og sagði ”okey þá það er fínn tími fyrir mig til að hugsa málin“.
Allt í einu bankaði einhver á hurðina hjá þeim, og einhver karlmannsrödd sagði þeim að taka saman dótið sitt, þau væru að fara að koma. Þau tóku saman dótið sitt og voru tilbúin að fara. Lestin hægði á sér og stoppaði síðan. Þau löbbuðu út. Harry sá Hagrid. Hann var að tala við nýliðana. Harry hljóp til hans og heilsaði honum. Hagrid var rosa glaður að sjá hann og vildi vita allt sem hann hefði gert um sumarið.
”Nei Hagrid, ég þarf að sýna þér svoldið núna“, sagði Harry. ”Sérðu veistu hvað þetta er?“ Hagrid brá rosa mikið og sagði ”Harry, hvar fékkstu þetta?“
”Ég fann hann, en hvað er þetta?“ sagði Harry.
”Sko þetta er……..“ sagði Hagrid ”sko komdu til mín í vikunni og ég skal útskýra, en farðu núna, stóru krakkarnir eru að fara, fljótur!“
Hann hljóp til hinna krakkanna. Hann veifaði Hagrid, en Hagrid sá hann ekki.
Hagrid var með rosalega skrítinn svip, alveg eins og hann hefði séð, ”þið-vitið-hvern …………."


þetta er svoldið stutt en ég á svo erfitt me að finna mikið upp og mér finnst skemmtilegt að látta stutta kafla inn :)
Er guð kona ?