Framhaldið á hinnu sem ég sendi í seinustu viku ekki vera dómhörð


Litla Dýrið
2 kafli


Harry labbaði eftir götunni, það var rosa heitt.
Við hliðin á götunni var langur skurður. Allt í einu heyrði Harry ýlfur í skurðinum, hann labbaði niður hann, en þegar hann var á leiðinni niður þá festist fóturinn á honum á milli tveggja steina, hann fann rosa mikið til ,ennþá heyrði hann ýlfrið hann reyndi að toga fótinn upp, en hann hreyfðist ekki, hann hafði reynt allt og var að gefa upp vonina, en hann varð að vita hvað var að væla.
Allt í einu hætti vælið, Harry reyndi ennþá meira að ýta steinunum frá fótunum frá sér, allt í einu byrjaði honum að vera illt í örinu, hann varð rosa hræddur, hann vissi að Voldemort var nærri, en allt í einu kom eitthvað loðið upp að honum og verkurinn varð meiri og meiri eftir hverri sekúndu, hann sá að þetta loðna var einhvers konar dýrategund, hann lyfti því upp, þá var þetta eitthvað nýfætt og rosa loðið og það blæddi úr fætinum. Harry reif bút úr peysunni sinni og lét utan um afturfótinn á litla dýrinu.
Harry byrjaði að tárast, honum var illt í örinu og var fastur í einhverjum skurði, hann reyndi aftur að ýta steinunum og í þetta skipti hreyfðist einn, hann varð svo glaður að hann reif fótinn upp, en ekki vel því honum blæddi rosalega. Hann stakk litla dýrinu í vasann og klifraði upp.
Þegar hann komst upp þá hætti verkurinn í örinu. Harry tók upp litla dýrið og gáði hvort það væri allt í lagi, litla dýrið var rosa sætt og leit svoldið út eins og hvolpur, bara miklu minni en venjulegur hvolpur.
Hann stakk dýrinu aftur í vasann og hljóp heim til sín.
Þegar hann kom heim til sín þá voru Ron og Hermione komin, hann sýndi þeim litla dýrið, engin af þeim hafði séð svona dýr áður, það leit rosa heimilislega út, og Sirius ákvað að leyfa Harry eiga að það.
Harry og Ron voru að reyna að finna nafn á litla dýrið, en Hermione var farin. Harry hafði gleymt að tala við þau um hann og Hermione, en hann var búinn að ákveða hvað hann ætlaði að gera. Hann ætlaði að hætta með Hermione, þótt hann væri skotinn í henni því hann vissi að Ron myndi verða öfundsjúkur og hann vissi að það væri betra að hafa Ron og Hermione en hafa Ron öfundsjúkann og hann vildi ekki lenda í rifrildi við Ron aftur.

Ron hafði fundið upp á nafni og það var mjög gott, og Harry ákvað það þannig að litla dýrið hét:Nymero.
Harry bjó til lítinn kassa úr gömlum kössum og lét lítið teppi í það og næsta dag ætlaði hann að kaupa almennilega körfu í dýrabúð og eitthvað dót handa Nymero.
Næsta dag senti Harry Hermione bréf og sagði henni að hann hafði enga ástæðu, bara að hann vildi bara vera vinur hennar.
Nymero líkaði rosa vel við nýja heimilið og var byrjaður að skoða sig um, Nymero var líka svoldill klaufi og var alltaf að detta og labba á alla veggi.
Það hafði liðið heil vika og Nymero hafði vanist öllu og var orðin litla gæludýrið hans Harrys.
Harry fékk Hogwartsbréfið sitt og hann var búinn að pakka og ætlaði að taka Nymero með sér.
Harry og Sirius ætluðu að fara að versla einum degi fyrr og sofa á Leka Seiðpottinum nóttina áður en Harry færi til Hogwarts.
Harry keypti allt sem hann þurfti, hann ætlaði að kaupa nýjann kúst, sá besti, þrumufleygur 007. Sirius ætlaði að gefa honum hann, því hann væri orðinn fyrirliði í Quidditch.
Þeir fóru aftur niður á Leka um kvöldið, þegar þeir voru búnir með allt fengu þeir sér að borða og fóru svo snemma að sofa, til að geta vera komnir snemma á lestarstöðina, því hann ætlaði að hitta Ron og Hermione klukkan 10. Þau ætluðu að fá besta lestarklefann.
Um morguninn tók Harry dótið sitt saman og lét Nymero í búrið og lét koffortið sitt í bílinn, síðan lögðu þeir af stað.
Þegar þeir komu niður á lestarstöð biðu Weasly systkinin tvö þarna og Hermione. Þau stóðu hjá brautarpalli 9 og 3/4.
Harry kvaddi Sirus með faðmlagi og fór aftur í gegn.
Þaug fundu rosa flottann klefa. Þau ætluðu að vera 6 saman: Harry,Ron,Hermione,Ginny,Neville og Seamus.
Allt í einu bankaði einhver á dyrnar hjá þeim. Þetta ver Draco,Crabbe og Coyle.
“Draco hvað ert þú að gera hér?'' sagði Hermione.
”Ég ætlaði bara að sýna aulunum svoldið sagði Draco og dró eitthvað úr vasanum þetta var……………………………………………. ……………… ''

Framhald í næstu viku :)
Er guð kona ?