Enn ein Trivian Sælir, allir hugarar! Í þessari grein ætla ég að vera með nokkrar Triviu spurningar að venju. Spurningarnar eru teknar úr bók sem heitir “So you think you know Harry Potter” en eins og nafnið gefur til kynna er hún á ensku. Bókin er því miður ekki til í íslensku þýðingu svo ég viti til en samt er einfalt mál að sjá spurningarnar á móðurmáli vor ef þú notar þessa þýðingarvél. En takmark mitt með þessari grein var ekki að auglýsa tranexp.com heldur að þýða nokkrar spurningar úr bókinni, nánar tiltekið úr “hard” flokknum með hjálp fyrrnefndar þýðingarvél. Reynd þú að finna svarið við þeim og sendu svo í greinarsvari hér að neðan. Þessar spurningar eru ekki mjög erfiðar svo að allir Harry Potter aðdáendur ættu að geta svarað þeim.

Frá hvaða dýrsmaga er Bezoar tekinn?

Hvað heitir Snape fullu nafni?

Hvaða fag kennir fröken Sinistra í Hogwartskóla?

Hvaða gæludýr á Millicent Bulstrode?

Í hvaða mánuði á Hermione afmæli?

Yfir hvaða stofnun var Cornelius Fudge einu sinni yfirmaður yfir?

Hvað heitir Madama Maxime fullu nafni?

Hvað eru margir risar eftir í Bretlandi?


Með kveðju, sverrsi.