Sælir, allir hugarar! Ég er að hugsa um að efna til einnar Triviu í viðbót, en þó dálítið öðruvísi. Hugmyndin er sú að hafa það þannig að einhver byrji á að svara þessum spurningum hér að neðan. Ef sá getur svarað öllu rétt má hann senda inn sínar eigin spurningar, og svo koll af kolli. En fyrst verður að vera búið að ganga úr skugga um að svörin hans séu rétt.
Spurningarnar í byrjunninni hljóða svona:

Hvað heitir systur Fleur Delacour?
Hvað heitir töfradrykkurinn sem verður til þegar asfódelrót og malurt er blandað saman?
Vektor prófessor er kennari í…?
Hvaða mánaðardag fréttist það í Hogwartskóla að Binky var dáin?
Hvaða stöðu gegna Volkov og Vulchanov í Quidditch?
Innihaldið í sprota Cedrics Diggorys er…?
Skröggur Illaauga heitir réttu nafni…?

Með kveðju, sverrsi