Lang flestir galdrar eru gerðir með sprotum, og þá er undantekningin óviljandi galdrar. Sprotar eru gerðir úr við og innihalda vissan kjarna sem þjónar hlutverki orkulindar, dæmi um kjarna eru fönixfjöður, einhyrningshár, lokkur úr hári válu og hjartarót úr dreka svo nokkur séu nefnd. Einnig eru sprotar gerðir úr mismunandi viðartegundum og þar má nefna beikivið, eik, rósaviður og kristþyrnir og auðvitað eru allir sprotar mismunandi langir. Sprotasmiður Englands er Herra Ollivander en aðrir sprotasmiðir eru staðsettir í öðrum löndum, sprotasmiður Rússlands er Gregorovich en sennilega eru fleiri þar sem Rússland er mannmikið. Galdramenn eiga fleiri en einn sprota um ævina ef skildi svo óheppilega til að sprotinn myndi brotna eða skaddast. Harry verður því að fara varlega með sprotan sinn ef Priori Incantatem á að bjarga honum aftur, þar sem sproti Voldemorts hefur sömu fjöður og Harry.

Nokkur dæmi um sprota:
Harry Potter: Kristþyrnir, 29cm, sveiganlegur, fönixfjöður
Fleur Delacour: Rósaviður, 24cm, ekki sveigjanlegur, lokkur úr hári válu
James Potter: Móhaníviður, 28cm, þjáll, (góður fyrir ummyndun)
Lily Potter: Pílviður, 26cm, sveigjanlegur, (góður fyrir galdrastörf)
Voldemort: Ýviður, 35cm, fönixfjöður, (mjög kraftmikill)
Hagrid: Eik, 41cm, frekar sveigjanlegur
Viktor Krum: Beikiviður, 26cm, pinnstífur, hjartarót úr dreka
Cedric Diggory: Askur, 31cm, þægilega fjaðurmagnaður, taglhár úr einhyrningi
Ron Weasley: Pílviður, 35cm, taglhár úr einhyrningi

*Kjarninn í sprota Cedric´s var einhyrningshár, Ron hefur líka einhyrningshár. Þetta er ekki merkilegt eins og þetta stendur en á bls 216 í fyrstu bókinni er eftirfarandi samtal milli Hagrid´s og Ronan´s:

“Heyrðu ég er feginn að við rákumst á þig, Ronan, einhyrningur hefur verið særður. Hefuru séð eitthvað óvenjulegt?” Ronan svaraði ekki strax. Hann starði áfram upp í himininn án þess að depla auga. Svo andvarpaði hann aftur. “Það eru alltaf þeir saklausu sem verða fyrstu fórnarlömbin,” sagði hann. ”Þannig hefur það alltaf verið og þannig er það enn”

Gæti hann verið að meina með “fyrstu fórnarlömbin” þá eins og fyrstu fórnarlömbin í stríðinu við Voldemort? Cedric er nú þegar dáinn, hann var meðal fyrstu fórnarlambana síðan Pettigrew kom aftur í þjónustu hanns.*

*Þetta skrifaði ég í korki en áhvað að vekja athygli á þessu aftur.


Og núna ættið öll að vera örlítið fróðari um sprota. Takk fyrir.
Admin@hp since 26. june 2003 - 10:25