Jæja hérna er partur 2, þeir sem ekki hafa lesið 3 eða 4 bókina ættu ekki að lesa þetta.

1992
Fyrsta vikan í Júní - Harry, Ron og Hermione elta Quirrell sem er í leit að viskusteininum, komast framhjá hindrunum og Harry sigrar Quirrell/Voldemort og viskusteininum er eytt
31 Júlí - Húsálfurinn Dobby heimsækir Harry og varar hann við yfirkomandi hættu ef hann snýr aftur í Hogwarts.
Snemma í ágúst - Ron bjargar Harry frá Dursley fjölskylduni í fljúgandi bíl og tekur hann með sér heim í “Hreysið”
1 September - Annað skólaár byrjar
31 Október - 500 ára dánadagsveisla hjá Næstum Hauslausa Nick. Um kvöldið heyrir Harry rödd sem hótar dauða og finnur Frú Norris steingerða

1993
Vor - Tom Marvolo Riddle(Trevor Delgome) er sigraður í Leyniklefanum, Harry drepur Basilíuslönguna.
31 Júlí - Harry verður þrettán ára, Marge frænka kemur í heimsókn
7 Ágúst - Á síðasta degi heimsóknarinnar, Harry verður svo reiður eftir ummæli frá Marge að hann blæs hana upp og flýr af hólmi. Harry fær far með Riddaravagninum á Leka Seiðpottinn.
7-30 Ágúst - Harry gistir á Leka Seiðpottinum og eiðir flestum sínum dögum í að rölta um Skástræti
31 Ágúst - Harry hittir Ron og Hermione í Skástræti og gista þau öll þar. Harry kemst að því að Sirius Black er á eftir honum eftir að hafa sloppið frá Azkaban.
1 September - Harry byrjar sitt þriðja ár í Hogwarts sem er núna gætt af vitsugum

1994
6 Júní - Við sólsetur á að aflífa Grágogg, Sirius Black er handsamaður þetta kvöld og á að veita honum Kossin, Harry, Ron og Hermione ná að bjarga Grágoggi og nota hann til veita Sirius frelsi. Harry kemst að því hver ber ábyrgð á dauða foreldra sinna.
22 Ágúst, Mánudagur - Harry fer ásamt Weasley fjölskylduni og Hermione á 422 heimsmeistaramótið í Quidditch
1 September - Harry og vinir hanns byrja fjórða ár sitt í Hogwarts
31 Október - Eldbikarinn velur nemendur til að keppa í Þrígaldraleikunum, bikarinn er lokkaður til að velja Harry.
24 Nóvember, Þriðjudagur - Fyrsta verkefnið í Þrígaldraleikunum er að komast framhjá dreka og ná Gulleggi
25 Desember - Jóladansleikurinn fer fram(20-24)

1995
24 Febrúar, kl 9:30 - Annað verkefnið í Þrígaldraleikunum er að finna aðferð til að geta lifað neðansjávar og bjarga því sem maður myndi sakna mest
24 Júní, við rökkur - Þriðja þrautin í Þrígaldraleikunum fer fram og eru Harry og Cedric fluttir með leiðarlykli á fundarstað við Voldemort, Ormshali drepur Cedric með sprota Voldemorts. Blóð úr Harry er notað til að gefa Voldemort líkama sinn aftur, Dráparar eru kallaðir aftur í þjónustu Voldemorts. Harry og Voldemort heyga einvígi en “Priori Incantatem” bjargar Harry og hann getur flúið aftur til Hogwarts með lík Cedrics
Admin@hp since 26. june 2003 - 10:25