Vei, þetta áhugamál er komið, gleðjumst yfir því! Í tilefni að því ætla ég að reyna að hafa smá keppni(þrátt fyrir að ég er ekki admin). Þú þarft að svara eftirfarandi spurningum og senda svörin til mín en ekki í áliti á greininni. Hér koma spurningarnar!

1. Hvað heitir eiginkona Aragorns(kóngulóarinnar)?
2. Hvað heitir Crabbe fullu nafni?
3. Hvaða ár fæddist Harry P.?
4. Hvað heitir kærasta Persys fullu nafni?
5. Hver semur Almennu álagabækurnar?
6. Hvað hefur Lockhart gefið út margar bækur?
7. Hvað heitir Lupin fullu nafni?
8. Hvað heita foreldrar Harry Potters?
9. Hver er heimavistardraugur Huffelpuff?
10. Hvað heita foreldrar Draco Malfoy fullu nafni?
11. Nefndu eitt nafn á bróður Dumbledors.
12. Hvað heitir halakarta Neville?
13. Hvernig datt Harry í hug að kalla ugluna sína Hedwig?
14. Hvað eru margir liðsmenn í venjulegum Quidditchleik?
15. Á hvaða skólaári var Oliver Wood í fyrstu bókinni?
16. Hvað heita leikmenn írska liðsins?
17. Hvaða ár sigraði Dumbledore Grindlewald, galdramann myrkru aflanna?
18. Hver eru áhugamál Dumbledors?
19. Í hvaða heimavist er tvíburasystir Parvati Patil?
20. Hvaða “töfraþulu” fer maður með þegar maður notar kvalabölvunina?

Vonanadi er þetta ekki alltof erfitt, kveðja, sverrsi.