<b>Sprite-X-treme Streethokkímót

Dagana 13.og 14. júlí höfum við tekið Skautahöllina í Laugardal á leigu og munum setja þar upp stærðarinnar streethokkí mót. Dagskráin er ekki fullmótuð. En mikið er víst að um heljarinnar skemmtun verður að ræða og mikið um að vera. Við höfum fengið ótal fyrirspurnir frá fólki um allt land og greinilegt að áhuginn er mikill. Nú þegar eru komin 7 lið sem hafa sýnt fyrsta sætinu áhuga. Allir eru velkomnir. Konur sem karla, stelpur sem strákar. Mótið verður aldursskipt svo að allir eiga möguleika. Það er bara um að gera að smala saman öllum sem geta skautað og skrá sig.


tekið úr fréttatilkynningu frá linuskautar.is
get ekki beðið !!
…hann var dvergur í röngum félagsskap