Íslendingar voru að klára að spila við Spánverja í þessum skrifuðu orðum. Staðan var nokkuð vænleg fyrir okkar menn þegar tvær lotur voru liðnar eða 3 - 4 fyrir Spánverja. Eitthvað hafa Spánverjar gírað sig upp í þriðja leikhluta því að leikurinn endaði 3 - 6 sigri Spánverja. Nánari lýsing á leiknum kemur síðar.