04.03.2007
Komnir til Kína

Þá er allt U18 ára liðið komið til Kína eftir frekar langt og strangt ferðalag sem gekk þó þegar á heildina er litið mjög vel. Þegar þessi orð eru skrifuð er klukkan um 23:00 að sunnudagskvöldi á Íslandi en um kl. 7:00 að morgni mánudags hér í Peking. Við komum hingað um kl. 15:00 að staðartíma í gær og fórum beint á æfingu enda fátt meira hressandi eftir 27 klst vöku. Strákarnir voru engu að síður bara sprækir og höfðu mjög gott af því að skauta úr sér þotufæturnar.

Hótelið sem við erum á er mjög gott, herbergin eru stór og vel útbúin, með flatskjá og tölvusambandi. Maturinn er einnig alveg ágætur þó eitthvað þurfi sumir að æfa sig með prjónana ef þeir ætla ekki að svelta þessa viku.

Dagurinn í dag hefst á æfingu núna strax eftir morgunmat en svo eigum við leik í kvöld kl. 20:00 eða um hádegi að íslenskum tíma. Eftirleiðis munu fréttir úr þessari ferð birtast aðeins á U18 linknum sem er hér til hliðar. Fleiri fréttir síðar í dag.


Tekið af ihi.is