SR vs Björninn Vil bara byrja á því að segja að þetta var ógeðslega hægur leikur, hann var leiðinlegur, ekkert að gerast í honum, ingin flott mörk allt bara einhver skítamörk, inginn flott tékk, ingar flottar sendingar og já bara ekkert flott meira að segja ingar flottar markvörslur.

1. Leikhlutur:

Þessi leikur byrjaði vel og eftir sex mín voru skoruð sex mörk, Sergei skoraði fyrsta mark leiksins, og eftir það komur þeir Úlfar Jón Andrésson og Þorsteinn Björnsson og skoruðu fyrir SR-inga, náðu síðan heimamenn að bæta við einu marki fyrir hlé og var þar að verki Daniel Kolar. SR-ingar voru heldur sókndjarfari þennan leikhlutan en þeir áttu 17 skot að marki gegn 11 skotum Bjarnarmanna.

2. leikhluti:

Í öðrum leikhluta jafnaðist leikurinn nokkuð og endaði sá leikhluti með þvi að bæði lið skoruðu tvö mörk en þar voru að verki Birgir Hansen og Hjörtur Geir Björnsson fyrir Bjarnarmenn en fyrir SR-inga skorðuðu fyrrnefndur Daniel og Svavar Rúnarsson, skot á mark voru ellefu mörk gegn tíu SR-ingum í vil.

3. Leikhluti:

Síðasta leikhlutann unnu svo SR-ingar einsog þann fyrsta með þremur mörkum gegn einu. Það sem vekur kanski helst athygli þar er að Bjarnarmenn höfuðu yfir í skotum á mark en þeir settu sextán skot á mark gegn fimmtán skotum SR-inga en það dugði bara ekki Bjarnarmönnum í þetta sinn.

Einsog sjá má hér að neðan dreifðust mörk og stoðsendingar nokkuð mikið á leikmenn beggja liða:

Mörk/stoðsendingar SR:

Daniel Kolar 2/0
Þorsteinn Björnsson 1/2
Mirek Krivanek 1/2
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Svavar Rúnarsson 1/0
Steinar Páll Veigarsson 1/0
Þórhallur Viðarsson 1/0
Stefán Hrafnsson 0/3
Gauti Þormóðsson 0/1

Brottvísanir SR: 34 min

Mörk/stoðsendingar Björninn:

Sergei Zak 2/1
Hjörtur Geir Björnsson 1/1
Birgir Hansen 1/0
Vilhelm Már Bjarnason 0/1

Brottvísanir Björninn: 28 mín.


Ég nenni ekki að lýsa þessum atvikum sem gerðist í leiknum því að það er svo erfit að útskýra þau en þeir sem voru á leiknum ættu og vita hvaða atvik ég er að tala um!!
I ran like hell faster than the wind