Ég hef lengi velt fyrir mér hvað menn hafa æft lengi íshokký hérna á Íslandi. Ég er t.d. búinn að æfa í 9 ár, og það hefur verið mjög gaman. Mér finnst einnig líka vanta fleiri lið hingað. Það vantar eitthvað nýtt lið fyrir næsta vetur ;).
En annars er íshokký spennandi íþrótt, mikil snerpa, hraði og gaman. Fyrir þá sem hafa einhvern áhuga á íshokký verða nauðsynlega að kynna sér þetta sport nánar. Eins og gömul auglýsing segir… “einu sinni smakkað getur ekki hætt” en nú er það “einu sinni prófað getur ekki hætt” .