Flottur leikur,
Þetta var mjög spennandi leikur og gaman að horfa á. SA stelpur héldu áfram uppteknum hætti og unnu enn einu sinni þrátt fyrir mikla baráttu Bjarnar kvenna. Í þetta skiptið var lokastaðan 3-0.
Bjarnarstelpurnar töpuðu fyrstu lotu 2-0, héldu annarri lotu markalausri en fengu síðan á sig mark í síðustu lotu og það var markið sem gulltryggði sigur SA í þessum leik.

Nú er bara að halda sér í formi því langt er í næsta leik. Hann verður ekki fyrr en eftir áramót einhverntíman. Sorglegt en satt.