Scott Niedermayer, leikmaður New Jersey Devils í NHL-íshokkídeildinni í Bandaríkjunum, jafnaði fjögurra ára gamalt met þegar hann skrifaði undir nýjan samning sem tryggir honum sjö milljónir dollara á komandi tímabili, eða um hálfan milljarð íslenskra króna. Niedermayer var valinn besti varnarmaður síðasta tímabils og hefur leikið allan sinn feril með Djöflunum frá New Jersey. Gamla metið átti John LeClair þegar hann samdi við Philadelphia Flyers fyrir jafnháa upphæð.