Kanadískur íshokkíleikmaður lést í bílslysi


Fyrrum leikmaður og þjálfari íshokkíliðsins Chicago Blackhawks, Keith Magnuson, lést í bílslysi norður af Toronto í Kanada í gærkvöldi. Hann var 56 ára og lék með Chicago í NHL-deildinni frá 1969 til 1980 og þjálfaði liðið 1980 til 1982.


(tekið af mbl.is)