Unnu Minnesota Wild sannfærandi 4-0 þar sem Jean-Sebastien Giguere, markvörður Anaheim fékk bara á sig 1 mark í allri seríunni.

Í viðureign New Jersey Devils og Ottawa Senators eru Devils langt komnir með að slá Ottawa út, staðan er 3-1 þeim í vil og Martin Brodeur hefur lokað markinu algjörlega í 2 leikjum af fjórum.

Úrslitarimman verður fróðleg, geta Endurnar frá Anaheim þolað að lenda í þeirri jarðýtu sem bæði Senators og Devils óneitanlega eru?

Endurnar hafa komið öllum á óvart og fá góða hvíld fyrir lokaviðureignirnar, en styrkurinn í vörninni og þunginn í sókninni hjá austurstrandarliðunum sem eftir eru er ógurlegur, auk þess sem ég er ekki viss um að Jean-Sebastien Giguere verði jafn dominerandi þegar Brodeur eða Lalime standa í hinu markinu.

Andvökunætur í maí þetta árið.

massi