Stórt kvöld framundan, 7. leikur í 3 rimmum, hver annarri skemmtilegri :)

Colorado Avalanche - Minnesota Wild
Nákvæmlega það sem Colorado vildu sleppa við, Minnesota Wild í vígahug og möguleika á að komast áfram.
Colorado á heimaleikinn, Wild eru dálítið villtir, þetta verður brjálaður leikur.

Vancouver Canucks - St. Louis Blues
Vancouver virðast hafa kveikt á háu ljósunum aftur og hafa unnið 2 leiki í röð, Naslund kominn í gang og hafa náð að bjarga sér tvisvar.
St. Louis eru þó sterkir og nú er tíminn fyrir Chris Osgood markverju að sanna sig í nýju liði.

Philadelphia Flyers - Toronto Maple Leafs
Hnífjafnt, stórkostlegt einvígi, 3svar sinnum í framlengingu, þar af 2svar í tvöfalda framlengingu, síðasti leikurinn verður sennilega frekar spennandi, liðin virðast vera nánast jafn góð.

Lítið sofið í nótt, best að leggja sig seinnipartinn :)

massi