úrslitakeppnin heldur áfram að vera stórskemmtileg og settist ég niður í nótt og horfði á magnaðan leik á milli Edmonton og Dallas. Þar sem ég er bara einfaldlega of þreyttur þá nenni ég ekki að gera grein úr þessu en Edmonton vann heimasigur 3-2 í mögnuðum þriðja leikhluta og leiða viðureignina 2-1.

Slæmt gengi Boston í úrslitakeppninni hélt áfram og tapaðist þriðji leikurinn í röð gegn NJ Devils 3-0.