Tekið af heimasíðu Skautafélags Akureyrar:

Breyttir leiktímar um næstu helgi

Líkt og alþjóð veit þá er næsti laugardagur mikill hokkídagur. SA-ingar munu halda suður yfir heiðar með bæði meistara- og kvennaflokk. Móta- og dómaranefnd hefur gefið út nýja ístíma fyrir þessa leiki og mun meistaraflokkurinn ríða á vaðið og hefja leik kl. 18:00. Kvennaleikurinn verður svo strax á eftir eða um kl. 20:45.

Aðaldómarar kvöldsins verða þeir Ágúst Ásgrímsson sem mun sjá um meistaraflokkinn og Viðar Garðarsson sem mun dæma kvennaleikinn.
<br><br>„We are all in the gutter, but some of us are looking at the stars.“

„Jesus is coming, look busy“
„We are all in the gutter, but some of us are looking at the stars.“