jæja… næstu helgi verður hörkuspennandi leikur á milli SA og Bjarnarinns hjá okkur kvennmönnunum.. mér er bara strax farið að hlakka til!! ;)

leikurinn verður laugardaginn 19. okt. kl. 17:30 í skautahöll Akureyrar!

Ég býst við að þetta verði nokkuð harður og góður leikur þarna fyrir norðan! Því það var einnig mikil barátta í leiknum sem fór fram síðastliðinn sunnudag, þar sem SR og bjarnarstelpur kepptu af mikilli hörku!

Þetta verður fyrsti leikurinn á móti SA sem við spilum og vonandi mun okkur ganga vel og auðvitað skemmta okkur vel líka!! ;)

Allir sem verða á Akureyri þessa helgi endilega mætið og styðjið okkur stelpurnar.. það er ekkert eins skemmtilegt og að hafa gott stuðningslið!!
"