<b>Hart Memorial Trophy</b>
H.M trophy er gefinn þeim leikmanni sem talinn
er vera mikilvægastur fyrir lið sitt.
Þeir sem tilnefndir eru fyrir 2001-02 leiktíðina eru þeir
Jarome Igilna, Calgary Flames, Patrick Roy, markvörður Colarado
Avalanches, Jose Theodore, markmaður Montreal Canadiens.
Ég giska á að Patrick Roy hafi þetta..

<b>Vezina Trophy</b>
Vezina Trophy er oftast gefinn, þeim markmanni sem stendur
sig best í þeirri stöðu.
Þeir sem tilnefndir eru fyrir 2001-02 leitíðina eru þeir, Sean Burke, Phoenix Coyotes, Patrick Roy, Colarado Avalanches, Jose Thoedore, Montreal Canadiens.
Hér stend ég á gati, ætli Jose Theodore hafi þetta ekki..

<b>Calder Memorial Trophy</b>
Calder Memorial Trophy er gefinn þeim leikmanni sem er mest framúrskarandi á sínu fyrsta ári í NHL(nýliðaverðlaun).
Þeir nýliðar sem tilnefndir eru á þessari leiktíð eru,
Dany Heatly, Atlanta Thrashers, Kristian Huselius, Florida Panters, Iyla Kovalchuk, Atlanta Thrasher. Séð er að Atlanta á sér
marga unga og efnilega leikmenn.
Ég giska á að Dan Heatly vinni, hann hefur staðið sig vel í vetur
og mun gera góða hluti í framtíðinni.

<b>James Norris Trophy</b>
James Norris Trophy er gefinn þeim varnarleikmanni sem sýnnir það á
leiktíð að þeir geti spilað mjög vel í þeirri stöðu.
Þeir sem tilnefndir eru á leiktíðinni eru þeir Rob Blake,Colarado Avalanches, Chris Chelios, Detroit Red Wings, Nicklas Lidstrom, Detroit Red Wings.
Chris Chelios vinnur, pottþétt..(en þetta er bara ég..)

<b>Frank J. Selke Trophy</b>
Frank J. Selke Trophy er gefinn leikmanni sem er bestur í því að
spila upp og byggja upp varnarleik, þeir sem eru final í því eru þeir, Craig Connor, Calgary Flames, Jere Lehtinen, Dallas Stars,
Michael Peca, New York Islanders.
Jere Lehtninen ætti nú að vinna, hann á það skilið.

<b>Lady Bing Memorial Trophy</b>
Lady Bing verðlaunin eru oft talin vera þau merkilegustu af þeim öllum, en þau eru veitt þeim leikmanni sem kemur best fram í leik,
er með drenglegasta leikinn og mestu herramennskuna.
Þeir sem tilnefndir eru hér eru þeir, Ron Francis, Carolina
Hurricanes, Joe Sakic, Colarado Avalanches, Niclas Lidstrom, Detroit Red Wings.
ÞeTTa er erfitt, allir þessir leikmenn hafa verið mjög drenglegir í ár. Hef ekki hugmynd hver vinnur..

<b>Jack Adams Award</b>
Jack Adams verðlaunin eru veitt þeim þjálfara sem hefur náð mestum árangri með lið sitt á leiktíð, þeir þjálfarar sem hafa náð mestum árangri og eru í final um tiltilin eru þeir, Bob Francis, Phoenix Coyotes, Bobby Ftek, Boston Bruins, Bria Sutter, Chicago Black Hawks.

Jæja, þá er bara að búða og sjá hver vinnur hvað….

afsakið stafsetninga villur, ég er alltof þreyttur til að hugsa…
…hann var dvergur í röngum félagsskap