Fyrirliði Carolina Hurricanes, Ron Francis.. Hann er fæddur þann fyrsta mars árið 1963 í Sault Ste Marie, Ontario. Var valinn í Hartford Whalers liðið árið 1981, í nýliðavali, hann spilaði alls 9. leiktíðir hjá Hartford áður en honum var skipt yfir í Pittsburgh penguins liðið, þann fjórða mars á 1991. Hann vann stanley bikarinn með liðinu tvisvar, árin 1991 og 1992. Hann spilaði í Nhl All-Starleikjum árin 1983, 1985, 1990 og 1996. Hann vann Selke bikarinn árið 1995, hann vann Lady Bing bikarinn árið 1995 og 1998. Á 1998-99 leiktíðinni varð hann í 39. sæti yfir heildar markaskorara í sögu nhl, með 449 mörk. Með því að gera 1037. stoðsendingar sem leiddu til marks á 1998-99 leiktíðinni, þá, þegar hann leggur skóna á hilluna, ætti hann að vera á topp 5.listanum yfir alls stoðsendingarmet í nhl. Hann fór í lið Carolina Hurricanes sem free agent þann 13. júlí árið 1998.
Hann er nú fyrirliði liðsins og fer fyrir þeim í úrslitum nhl deildarinnar, snilldar leikmaður í alla staði(að minnsta kosti flesta :), hann er að standa sig mjög vel að mínu mati í úrslitunum og er sterkur leikmaður, bæði andlega og líkamlega..

Takk
—–
fic, a.k.a Decon Frost..
…hann var dvergur í röngum félagsskap