ÉG var á gangi um hafnarfjörð um daginn þegar allt í einu birtist mér engill í mannslíki. þetta var maður í englalíki, hann var labbandi um bæinn gefandi brauð þegar allt í einu hann gekk til mín og sagði tekuru leik? Ég náttúrulega skil ekkert málinu og spyr hvað hann eigi við. ,,Hokkí“ segir hann þá snöggt með sinni englaröddu. Ég náttúrulega játa (neita aldrei hokkíleik). Og þá hófst keppnin ég á nýju Rollerblade skautunum og með fína kylfu, ætla að rústa honum þegar allt í einu tekur hann pökkinn og þrykkir honum í andlitið á mér. þá fýkur í mér og ég spyr hann til hvers í andskotanum hann hafi gert þetta. ,,Ég vildi ekki tapa” sagði hann. þá tók ég pökkinn og tróð honum upp í hann. eftir þetta hef ég hatað engla því ég missti sjónina á öðru auga útaf honum. ég byrjaði aftur að æfa hokkí til að geta rústað honum næst þegar ég hitti hann.

kveðja
fic
…hann var dvergur í röngum félagsskap