Íshokkí er knattleikur leikinn á svelli með tveimur sex manna liðum. Leikmennirnir eru á skautum, með hjálma og hlífar og reyna þeir að koma pökknum í mark andstæðinganna með kylfum. Leiktíminn er 3x20 mín. Vellinum er skipt í: varnarsvæði, hlutlaust svæði og sóknarsvæði. Sóknarmenn eru rangstæðir ef þeir fara á undan pökknum inn á sóknarsvæðið eða yfir tvær línur framan eigin marklínu á undan honum. Það má segja að íshokkí sé hörkuleg íþrótt því ýmis konar stympingar eru leyfðar. Íshokkí er upprunnið í Kanada um miðja 19.öld og varð ólympíugrein árið 1920. Á Íslandi var fyrst keppt í íshokkí á Akureyri árið 1941.Á Íslandi hefur íþróttin ekki náð mikilli útbreiðslu en þó eru þrjú lið starfrækt. Þau eru Skautafélag Akureyrar, stofnað 1. janúar 1937, Skautafélag Reykjavíkur, 31. október 1938 og Björninn í Reykjavík sem var stofnað 22. nóvember 1990.
Þol:Íshokkíleikmenn þurfa að hafa rosalega gott úthald. Þeir eru oft stutt inni á vellinum í einu. Þolþjálfun er mismunandi eftir íþróttagreinum og skorpuvinna hentar vel fyrir íshokkí. Loftfirrt þol er nauðsynlegt þeim sem stunda íþróttina.