1.
Já ég hef verið að koma hingað inn síðustu 4 mánuði eiginlega á hverjum degi rétt að glugga hingað og ég hef tekið eftir því að áhugamálið er bara virkt þegar það eru einhver rifrildi í gangi..

T.d með þessa Heimadómara grein
og þessa grein um að Bjarnarmenn eigi ekki að fá að spila hockey :s

af hverju kemur það voða sjaldan fyrir að það komi upp góð umræða um einhvað sem er ekki rifrildi eða diss… ???

2. Það virðist vera að það sé alveg hættar að koma fréttir frá NHL deildini hingað inn… Adminarnir voru nokkuð duglegir við að koma með svona fréttir en það virðist allt vera hætt…

3. Af hverju þarf fólk líka að koma með svona skítköst út í annað fólk t.d ef það er verið að segja einhvað um Sr eða hin liðin þá kemur alltaf einhver SR sökka marr Björninn eða Sa lang bestir marr.

Getur fólk ekki komið hingað og hætt þessu rugli og verið til friðs… Allir í skóginum eiga að vera vinir líka hér :P

Kveðja Sindri