Hvað í anskotanum er í gangi í þessu litla íshokkísamfélagi á Íslandi?
Það liggur við að það sé yfirvofandi heimstyrjöld á milli óþroskaðra smábarna sem voru að sleppa útaf klepp!!
Bara við það að lesa yfir korka hérna og svör við heimadómaragreininni þá eru svona inn á milli 2-3 með vit
hitt er allt bara ; eyjj þú sökkar. Nei þú sökkar. Nei þú sökkar…fokkin hommi!!

Hvað er málið?
Sumir hérna(nefni engin nöfn) hafa verið að tuða eeendalaust yfir því að það sé alltaf heimadómarar og það geti enginn gert neitt rétt í dómgæslu!! well guess what! þótt það er ALLTAF einhver smá hlutdrægni hjá hverjum og einum!!! hverjir eru það upphaflega sem eru að kvarta???
Það eru þeir sem finnst vera að svindla á sér því að það er annaðhvort dæmt of mikið á liðið sitt eða of lítið á andstæðinginn!!

Eins og á leiknum á milli SR og Bjarnarins á fimmtudaginn… það eina sem maður heyrði var skítkast í dómarann sem var að hafa fyrir því að fljúga frá Akureyri til þess eins að dæma hokkíleik!!!
Fyrir það fyrsta þá dæmir hann eins og honum finnst.. og haldiði virkilega að hann væri með dómararéttindi ef hann kynni ekki að dæma? nei hélt ekki!!

Svo skiptir það engu máli hver sé bestur!! Þetta ég er betri en þú er bara eitthvað egóbúst fyrir þá sem eru með minnimáttarkennd og halda að með því að vera með kjaft og stæla verði þeir eitthvað betri!! stór misskilningur!!

Það segir sig líka sjálft hverjir séu bestir á þessu landi.. sama hvaða dómari dæmir!!

Þroskisti!!
#16