Hér er smá um NHL bikarana ef þið vitið ekki við hvað hver bikar stendur fyrir!

Hart Memorial Trophy
H.M trophy er gefinn þeim leikmanni sem talinn
er vera mikilvægastur fyrir lið sitt.

Vezina Trophy
Vezina Trophy er oftast gefinn, þeim markmanni sem stendur
sig best í þeirri stöðu.

Calder Memorial Trophy
Calder Memorial Trophy er gefinn þeim leikmanni sem er mest framúrskarandi á sínu fyrsta ári í NHL(nýliðaverðlaun).


James Norris Trophy
James Norris Trophy er gefinn þeim varnarleikmanni sem sýnnir það á leiktíð að þeir geti spilað mjög vel í þeirri stöðu.


Frank J. Selke Trophy
Frank J. Selke Trophy er gefinn leikmanni sem er bestur í því að
spila upp og byggja upp varnarleik.

Lady Bing Memorial Trophy
Lady Bing verðlaunin eru oft talin vera þau merkilegustu af þeim öllum, en þau eru veitt þeim leikmanni sem kemur best fram í leik,eða sem er með drenglegasta leikinn og mestu herramennskuna.


Jack Adams Award
Jack Adams verðlaunin eru veitt þeim þjálfara sem hefur náð mestum árangri með lið sitt á leiktíð.
——————————————— ———————
Ég vona að þetta sé einhver fróðleikur.

Kveðja,
Langston