Klúður hjá Detroit. Detroit Red Wings-5
Nashville Predators-5

Detroit, sem lék frábæran leik í fyrstu tveimur hálfleikunum og var þremur mörkum yfir, 5-3, klúðraði málunum illa í þeim þriðja þegar það tapaði forystunni og lét Nashville liðið jafna metin.

Fyrstu tvo skot Detroit á net Nashville enduðu með marki, þeir sem skoruðu mörk Detroit voru þeir Henrik Zetterberg, Chris Draper, Brendan Shanahan og Pavel Datsyuk. Detroit hafa ekki unnið seinustu fjóra leiki sína, þeir standa 0-2-2-0 í seinustu fjórum.

Hinsvegar stóðu Nashville sig frábærlega í seinni hluta leiksins, þremur mörkum undir náðu þeir að jafna, þeir nýttu liðsmuni til fullnustu og náðu að skora tvö power-play mörk. Mörk liðsins skoruðu þeir Mark Eaton, David Legwand, og svo gerði Kimmo Timonen frábæra hluti og skoraði tvö mörk en jöfnunarmarkið góða skoraði snillingurinn David Arkihipov.

Brett Hull, hægri vængur Detroit, sem er með 699. mörk á ferlinum og 7oo. marka múrinn á næsta leyti náði ekki að skora í sínum fimmta leik í röð.

Detriot er í fjórða sæti í Vestur deildinni og í 7. sæti overall.

Hinsvegar er Nashville liðið í fjórtánda sæti í Vestri og í 26. sæti overall, þeir munu ekki ná úrslitunum (Playoffs) í ár.
…hann var dvergur í röngum félagsskap