Sú fyrsta. Kanadíska ofurkonan Haley Wickenheiser, fyrirliði kvennalandsliðs Kanada, og leikmaður í finnska karla liðinu Kirkkonummi Salamat, sem er í finnsku úrvalsdeildinni, var nú á dögunum fyrsta konan í heimi til að skora mark í karlaleik þegar hún náði að læða bakhandarskoti framhjá markmanni liðsins Titaanit.

Það eina sem hún sagði í enda leiksins var: “I'm not satisfied, we lost the game…fuck!” :D -En lið hennar tapaði 5-4.

Wichenheiser lagði einnig upp annað mark í leiknum, hún er með 3. stig í sex leikjum, eitt mark og tvær stoðsendingar.

Hin 24 ára kona er önnur konan í heiminum til að spila framherja stöðu í karlaleik, Bandaríska konan Maren Valenti spilaði í þýsku deildinni en fékk engin stig skráð.

Hinsvegar hafa þrjár amerískar konur leikið stöðu markmanns í karlaleikjum, þær Kelly Dyer, Manon Rheaume og Erin Whitten.

Þetta var hennar fyrsta mark, þau verða án efa fleiri.
…hann var dvergur í röngum félagsskap