Stórsigur hjá Rangers. New York Rangers-5
Toronto Maple Leafs-1

Loksins, loksins er eitthvað róttækt að gerast hjá Rangers og það kom greinilega í ljós þegar þeir unnu lið Toronto í miklum markaleik í gær, mánudaginn 13. janúar.

Petr Nedved fór hreinlega á kostum fyrir Rangers og náði sér í magnaða þrennu (Hat-Trick), þriðja markið kom 18. sekúndum fyrir leikslok, Eric Lindros gerði líka frábæra hluti, skoraði eitt mark og aðstoðaði annað mark Petr Nedved´s, einnig skoraði varnarjaxlinn Darius Kasparaitis mark fyrir Rangers.

Mike Dunham var eins og múrveggur milli stanganna hjá Rangers og varði 23 skot, hann fékk þó ekki shut-out því að Alyn McCauley skoraði fyrir Toronto þegar um það bil 10.minútur voru eftir af leiknum. Dunham aðstoðaði einnig þriðja mark Petr Nedved´s.

Frábær leikur og gaman að sjá Rangers lifna skyndilega til lífsins, Brian Trottier (Þjálfari Rangers) leggur greinilega mikið í sölunar nú þegar það var hótað að reka hann eftir einn tapleik í viðbót.

Rangers sitja í 11. sæti Austurdeildarinnar með 43. stig, hins vegar sitja Toronto í því 6. með 49. stig.

Three star selection(Fic)

3. Mike Dunham-New York Rangers: 23 skot varin, 1 mark á móti.
2. Eric Lindros-New York Rangers: 1 mark og 1 stoðsending.
1. Petr Nedved-New York Rangers: 3 mörk.
…hann var dvergur í röngum félagsskap