Byrjunarlið All-Star liðanna tilkynnt. Jæja, nú er #53 all star leikurinn í NHL á næsta leyti og á dögunum voru byrjunarliðin hjá East og West tilkynnt á <a href="http://www.nhl.com/">nhl.com</a>, valið er í liðin með atkvæðagreiðslum sem nú eru yfirstaðnar.

Leikurinn fer fram í Florida (Á velli Panthers), Sunnudaginn 2. febrúar.

Þjálfarar liðanna eru þeir Jacques Martin fyrir Austur liðið, hann er þjálfari Ottawa Senators,og Marc Crawford mun vera aðalþjálfari Vesturliðsins, en hann er þjálfari Vancouver Canucks.

Byrjunarliðin eru eftirfarandi:
Vestur:
Mark: Patrick Roy, markmaður Colarado.
Vörn: Niclas Lidstrom, varnarmaður Detroit.
Vörn: Rob Blake, varnarmaður Colarado.
V.vængur: Bill Guerin, vængur Dallas.
H.vængur: Teemu Selanne, vængur San Jose.
Center: Mike Modano, center Dallas.

Austur:
Mark: Nikolai Khabibulin, markmaður Tamba Bay.
Vörn: Sandis Ozolinsh, varnarmaður Florida.
Vörn: Brian Lettch, varnarmaður New York Rangers.
V.vængur: Jaromir Jagr, vængur Washington.
H.vængur: Alexei Kovalev, vængur Pittsburgh.
Center: Mario Lemieux, center Pittsburh.

Gulltryggt er að þetta verður leikur sem fólk mun seint gleyma…
…hann var dvergur í röngum félagsskap