Paul Kariya valinn leikmaður vikunnar. Þar sem Aage er fráverandi mun ég taka að mér að skrifa um leikmann vikunnar í NHL, sem að þessu sinni er Paul Kariya í liði Anaheim.

Aðrir leikmenn sem voru tilnefndir:Markmaður Chicago, Jocelyn Thibault, markmaður Montreal, Jose Theodore og einnig center Montreal, Yanic Perreault.

Kariya byrjaði vikuna vel, skoraði tvo mörk og átti þrjár stoðsendingar í 5-2 sigri Anaheim á St.Luis, átti svo eitt mark og eina stoðsendingu í 5-4 tapleik á móti Los Angeles, hann nældi sér svo í tvær stoðsendingar í 4-0 sigri á móti Phoenix.

Í sjö seinustu leikjum Anaheim standa þeir 6-1-0-0, eða þeir hafa unnið sex og tapað einum.

Einnig má bæta því við að Anaheim er fyrsta liðið á tveimur leiktíðum sem hefur haft tvo leikmenn úr þeirra röðum valda leikmenn vikunnar.
…hann var dvergur í röngum félagsskap