Núna er búið að finna stað þar sem allar “íshokkíbullur” eru velkomnar! Sá staður er “Wallstreet” í Ármúla, fyrir ofan Árnesti, við hliðina á Hótel Íslandi.

Sýndur verður NHL leikur á fimmtudögum klukkan 20 en það er yfirleitt upptaka af miðvikudagsleiknum (sem fer fram á mjög ókristilegum tíma). Einnig á að reyna að sýna NHL leiki á sunnudagskvöldum og síðan líklega norsku deildina á mánudögum.

Tilgangurinn með þessu er að horfa á það besta sem hokkí hefur uppá að bjóða og skemmta sér vel!!!

Allir eru velkomnir en þess ber að geta að þetta er staður með vínveitingaleyfi þannig að þeir sem ekki hafa aldur til, verða að vera í fylgd fullorðinna.

Þetta er fyrsta kvöldið af mörgum sem verða í vetur en þetta er sjálfstætt framtak áhugamanna um íshokkí, hvort sem er á Íslandi eða erlendis.

Grunntexti fengin að láni frá www.skautafélag.is