Micastaðsetning Hérna er mynd sem ég teiknaði af æfingarhúsnæði (upptökuveri) okkar strákanna. Þetta er mjög lítið og æðislega kósý herbergi með rauðum teppum á gólfi og veggjum. Kannksi maður hendi inn mynd seinna. Annars teiknaði ég þessa mynd til að lýsa fyrir ykkur staðsetningu á micum og gerð þeirra síðast þegar við tókum upp gítar. Gerð micanna stendur fyrir neðan myndina.

Við ætluðum nú að taka upp með fleiri micum til að heyra hvar og með hvaða micum væri flottasta soundið, en okkur vantaði fleiri micstatíf, og okkur fannst bara helvíti gott sound úr þessu svona. Þegar búið verður að mixa lagið hendir maður kannksi inn link á það;)