Sælir, ég er aðeins að taka til í græjuhirslunum og er með þrjá hluti til sölu.

AKG D112. Kassinn fylgir með. Klemman er týnd. Annars er mækinn í algjöru mint condition, nánast eins og nýr. Kvikindið fer á 30.000, kostar 45.400 nýr í HljóðX.

M-Audio Pulsar Matched Pair: Litlir condenser micar, kjörnir sem overheadar. Mjög “detailed” mækar miðað við verð. Önnur klemman er týnd, en ég get látið aðra fylgja með, þó það sé ekki official klemman. Fyrir utan það erum við að tala um mint condition. Parið fer á 35.000. Kostar 54.000 nýtt í Hljóðfærahúsinu.

MXR 10-band EQ pedall. Frábær EQ pedall, Range-ið er frá 32,5 Hz uppí 16 KHz, hentar því vel bæði fyrir bassa og gítar. Straumbreytir fylgir ekki. Þessi er built like a tank. Pedallinn er nánast ónotaður, hvílir kannski klukkutími af rokki á honum. Fer á 13.500. Kostar 21.900 nýr í Tónastöðinni.

Hafið endilega samband í síma 694-4603 eða mail á theportlander hjá gjemeil.