Góðan daginn hér :)

Ég er í grunge / rokk hljómsveit sem heitir StaleGrenade. Við erum búnir að vera að spila í 7-8 mánuði og okkur langar að taka upp eitthvað af lögunum sem við erum komnir með.

Á myspace eru upptökur gerðar í skúrnum á rás2 fyrir nokkrum mánuðum. Þá vorum við nýbúnir að skipta um trommara og vorum illa æfðir. Upptökurnar voru auk þess illa unnar af þeim í skúrnum, svo að gæðin eru ekki mikil. Upptökurnar gefa samt hugmynd um hvernig tónlist við spilum og svoleiðis.
Smá breytingar síðan þá, nýr bassaleikari kominn og við erum í ágætu spilaformi eftir miklar æfingar.

En allavega, við erum að leita að einhverjum sem hefur aðstöðu til að taka upp rokkhljómsveit og mixa fyrir ekki of mikinn pening. Sama hversu einföld eða lítil aðstaðan er.

Við svörum öllum hugmyndum :)