Sæl/ir er að leita mér að VI (virtual instrument) sem er svipað og ezdrummer og það, nema að það hafði valmöguleika um að “velja MIDI kafla að handahófi með tilliti til spilamennsku”.
Þá meina ég að ég þurfi ekki að raða upp ýmis MIDI köflum (þeas riffum úr Ezdrummer/Superior t.d.) til að fá að spila með því seinna, heldur er VI-ið að velja MIDI kafla að handahófi í beinni! Þetta mundi vera miklu skemmtilegra að geta sest niður og byrjað að jamma með tölvunni :)

En spurningin er hvort að þetta hefur eitthvern tíman verið útfært og hvort það sé hægt á almennilegan hátt. Það væri t.d. flott að geta látið hann ellta mig en ekki öfugt. Þá væri hægt að nota MIDI-In merki, t.d. fótpedal, til að senda til VI merki um að skipta eigi um tegund af trommukafla. Það gæti verið hægt að skipta yfir á nýjan verse kafla, eða yfir í nýjan fill/break, eða í nýjan bridge hluta o.s.fr (allt að handahófi en með flokkun á tegundir trommukafla). þannig að við séum að stjórna heilu lagi/session með MIDI in merkjum.

Þekkið þið eitthvert VI sem býður upp á svona hugmynd?

Bætt við 10. nóvember 2010 - 01:17
Þetta á að vera “Virtual Trommari sem jammar með þér”
Gear: ESP Eclipse I, Níðhöggur, Peavey Classic 50/212, Gretch Blackhawk EX, Roland HD-1. Logic Pro & Macbook Pro