Ég er að spá, ég er aðeins að leika mér heima í stúdíóinu mínu og er að prufa að semja lag sem er í raun svona í sama flokk og Owl City. Eina sem ég er að spá, hvaða plugin og svona ætti maður að setja á röddina til þess að fá þetta svona eins og hann hljómar.
Veit að þetta er á köflum eitthvað harmony effectadæmi. En svo er líka eitthvað svo spes hljómur í röddinni.
Ekkert mál að syngja svipað og hann en þetta væri flottara ef maður myndi mixa röddina almennilega.

Semsagt já ég er að prufa svona One man band pælingu hehe!

Bætt við 8. apríl 2010 - 02:56
Er þetta Autotune á köflum hjá honum?
Cinemeccanica