Ég er að leita mér að usb mixer, jafnvel digital mixer en ekki endilega samt.
Var nú bara svona að spá hverju þið mælið með, hvað er svona best ef ég ætla að reyna að láta gott verð og góðan mixer haldast í hendur.

Behringer hefur alltaf verið drasl merki í mínum huga en ég er nú samt eitthvað að spá í einhverjum ódýrum.

Mixerinn þarf að geta tekið 6 mica þegar mest er og svo líka bara venjulega left og right jackasnúrur.
T.d. er þessi nokkuð töff og kæmi alveg til greina: http://www.pssl.com/images/ProdImage01/500/PROFX12.jpg

En langaði svona að heyra í fólki hér og tékka á þessu.
Er ekkert að fara að kaupa fyrr en í maí þannig það er gott að vanda valið vel.
Cinemeccanica