Heilir og sælir Hugarar,

Mér áskotnaðist rými sem er að hluta til geymsla fyrir fyrirtækisgögn en það sem eftir er, er prýðilegt pláss til að koma upp sæmilegu project stúdíói. Frekar en að reysa vegg á milli vörugeymsluplássins og restarinnar var mér bent á að snjallt væri að kaupa tjöld sem myndu leysa tvær flugur í einu höggi. Annarsvegar hjálpa til við drepa bergmál í herberginu og einnig veita hljóðeinangrun (og þ.a.l., þeim öðrum sem í húsinu eru, frið).

Veit einhver hér hvar ég verð mér úti um tjöld sem þessi. Liggur kannski einhver með svona ónotað og vill gjarnan selja mér.

Lát heyr.
We´re gonna play a song. If it sucks it´s jazz - if it´s good, we got lucky! - Stevie Salas