Sælir,
Ég þurfti að rigga saman demói í vor fyrir músiktilraunir bæði til að senda inn og til að sýna hinum hljómsveitarmeðlimunum lagið, svo þetta var það sem ég gerði.

Macbook með GarageBand og innbyggðum mic
Kassagítar
Rödd

Byrjaði að búa til trommutakta og púsla þeim saman. Var ekkert að fikta meira í sándinu. Notaði bara músina við þetta.
Tók upp kassagítarinn í gegnum innbyggða micinn og stillti svo sándið í döðlur eftir á. Overdrive og eitthvað.

Söngurinn svo tekinn upp í gegnum þennan innbyggða mic.

Það er alveg hellingur af villum í þessu sem ég nennti ekki að leiðrétta, bara ein taka út í gegn. Einnig er ég bara að bulla einhvern texta. En fínasta skítaredding samt sem áður finnst mér. Hvað finnst ykkur?

http://musiktilraunir.is/PortalData/4/Resources/mp3/Lost___Found.mp3