Stórkostleg einföldun:
Mixa: Taka öll hljóðfæri og setja saman í eitt lag
Mastera: taka öll lögin og setja saman í eina plötu.
Mastering er allra siðasta skrefið í vinnslu á lagi/plötu.
Það felst í því að taka mixið, og jafna það út, reyna að fá lögin til að hljóma eins gegnum alla plötuna (þeas. þannig að það sé nokkurnveginn sami bragur á þeim öllum). Koma í veg fyrir slæmar tíðnir séu að leka gegnum mixið, og mest áberandi, að keyra upp styrkinn á laginu.
Masteringu er ekki hægt að gera heima hjá sér, og heldur ekki í mörgum aðstöðum.
Alvöru mastering fer fram í herbergi stútfullu af high-end græjum, sem er með algjörlega flötum mónitorum, og mjög vel treatuðu herbergi.
Það sem margir hér gera eflaust er að nota einhver forrit (Ozone, Flux Solera, Brickwall Limitera o.s.frv) til að keyra upp hljóðstyrkinn á mixinu, en það er ekki hægt að kalla það masteringu (oft kallað “Loudening”)
Í masteringunni er lögunum raðað niður á plötuna, ákveðið bil á milli laga, sett Fade in/out á lögin o.s.frv
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF
Ég er nú reyndar ekki alveg sammála þér með það að það sé ekki hægt að mastera heima hjá sér eða að það þurfi alveg gríðarlega fancý græjur til þess.
Hljómsveitin mín masteraði fyrsta diskinn sem við gáfum út í Sýrlandi, Bjarni Bragi sá um masteringuna og gerði það bara nokkuð vel.
Síðan þá höfum við masterað öll lög sem við gefum út sjálfir og verið að fá alveg toppeinkunn fyrir vinnubrögð frá útgefendum og erlendum netmiðlum, við komumst að því að ef við ætluðum að geta skilað af okkur lögum og endurhljóðblöndunum án þess að stórtapa á því þá yrðum við að gera þetta sjálfir, annars myndum við vera að borga amk 40.000 með hverju lagi.
Við vorum ekki vissir um að við gætum þetta í fyrstu en þetta hefst með því að liggja yfir mismunandi mixum og hlusta á þau við allavega aðstæður, í bílnum, á ipod, í góðum/lélegum græjum osfrv og punkta hjá sér hvaða smáatriði þurfi að strauja til osfrv og síðan að leggjast yfir helvítið með tékklistann við höndina og fínvinna / ganga frá dæminu.
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.
0
Ok dreg það kanski til baka að vissu l eiti.
En maður verður virkilega að vita hvað maður er að gera, og taka sér góðann tíma í það, hlusta á sem flestum stöðum o.s.frv.
Hinsvegar finnst mér ekki að fólk ætti að taka að sér masteringu fyrir aðra (hvað þá að vera að selja það) nema í almennilegri aðstöðu og kalla það “masteringu”. Finnst aðeins annað að vera að mastera eigið efni til að gera það útgáfuhæft.
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF
0
Þetta er svona svipað og með allt annað.
Ef maður gefur sér tíma í það og leggur sig allan í það þá tekst það!
0