Jæja, þar sem að Bassatromman er oft hjartað í laginu, þá langar mig að forvitnast aðeins um hvaða bassatrommumica þið eruð vanalega að nota. Ég á einn AKG D112 sem að ég er bara alls ekki að fýla í það sem ég er að gera, finnst hann alltof muddy og fæ ekki nógu tært og ferskt sánd úr honum. Aftur á móti hef ég parað hann með Shure 819 (eldri útgáfa af Beta 91) og fékk svona glimrandi skemmtilega útkomu, shureinn færði mér bleytuna og djúsinn í bassatrommuna, en AKG inn gaf mér dýptina (var að leita eftir þessu “týpíska” *clickaða* bassatrommusándi sem að maður heyrir svo oft í þungarokki.

Þar sem að ég sé ekki fram á að ég muni nota AKG inn einann með ásættanlegrum árangri er ég að spá í að fjárfesta í öðrum bassatrommumic við tækifæri (þar sem að ég á ekki 819 micinn sem ég notaði, heldur trommarinn sem ég var að taka upp fyrir í það skiptið)

Þá er það spurning, hvað ætti ég að skoða.
Langar í Shure SM91, en hann er svona frekar dýr, er mjög heitur fyrir að prufa Blue KickBall, og væri gaman að vita ef að einhver hér hefur prufað hann og hvernig honum líkaði.

Er ekki alveg nógu heitur fyrir PG/Beta 52, þar sem mig grunar að þeir séu frekar líkir AKG d112 micnum.

er eiginlega lítið spenntur fyrir öðrum merkjum, en gaman að vita af því samt

En allavega, hvaða bassatrommumica hafið þið prufað og hverja líkar ykkur best við ?
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF